Ferill 271. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 271 . mál.


524. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um álagningarstuðla vörugjalda á sportvörur.

Frá Kristjáni Pálssyni.



    Hver er ástæða þess að vörugjöld á sportvörur eins og byssur, skot og skyldar vörur eru 25% á meðan vörugjöld á aðrar sportvörur eins og veiðistangir, skíði og golfsett eru engin?
    Er ráðherra reiðubúinn að lækka álagningarstuðla á sportvörum eins og búnaði til skotveiða til samræmis við annan sportbúnað?