Ferill 366. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 366 . mál.


644. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um skiptingu bóta.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



    Hvernig skiptust bætur árið 1996 milli skattumdæma, greint milli hjóna annars vegar og einhleypinga hins vegar, með og án barna, hlutfallslega og í heildarupphæðum:
    barnabætur,
    barnabótaauki,
    vaxtabætur?


Skriflegt svar óskast.