Ferill 451. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 451 . mál.


763. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um virðisaukaskatt af vöruflutningum.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



    Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að leiðrétta þá mismunun sem fram kemur í lögum um virðisaukaskatt um að greiða skuli 24,5% virðisaukaskatt af almennum vöruflutningum innan lands en engan virðisaukaskatt af innanlandsflutningi þegar flutt er beint til eða frá landinu (samsettir flutningar)?


Skriflegt svar óskast.