Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1116, 121. löggjafarþing 259. mál: viðurkenning á menntun og prófskírteinum (flokkun starfsheita).
Lög nr. 37 16. maí 1997.
Lög þessi gilda um störf sem löggildingu, leyfi eða aðra jafngilda viðurkenningu þarf til og falla undir tilskipanir 89/48/EBE eða 92/51/EBE, sem og viðauka við þær svo sem þeir eru á hverjum tíma, sem samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið nær til og kveða á um almennar reglur um gagnkvæma viðurkenningu á prófskírteinum vegna starfsmenntunar.
Þingskjal 1116, 121. löggjafarþing 259. mál: viðurkenning á menntun og prófskírteinum (flokkun starfsheita).
Lög nr. 37 16. maí 1997.
Lög um breyting á lögum nr. 83/1993, um viðurkenningu á menntun og prófskírteinum, með áorðnum breytingum.
1. gr.
1. mgr. 1. gr. laganna orðast svo:Lög þessi gilda um störf sem löggildingu, leyfi eða aðra jafngilda viðurkenningu þarf til og falla undir tilskipanir 89/48/EBE eða 92/51/EBE, sem og viðauka við þær svo sem þeir eru á hverjum tíma, sem samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið nær til og kveða á um almennar reglur um gagnkvæma viðurkenningu á prófskírteinum vegna starfsmenntunar.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 7. maí 1997.