Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Ég hef ekki fullmótaðar hugmyndir um það og ég er mjög þakklátur fyrir ráðleggingar og góðar ábendingar í þessu efni. Þetta er verk sem ég tel að þurfi að vinna. Ég tel mjög mikilvægt að reyna að ná betri tökum á þessu og af því leiði annað sem léttir okkur viðfangsefnið en út af fyrir sig eru hugmyndir ekki fullmótaðar þar um.
Varðandi spurninguna um utanrrn. skilst mér að í aðgerðaáætlun utanrrn. sé tekið á þessu máli en það getur vel verið að ástæða sé til þess að hnykkja á því í nefndarstarfinu í félmn., a.m.k. að kanna hvort gengið er eðlilega frá þessu.