Flm. (Lúðvík Bergvinsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég held að það hafi aldrei verið dregið í efa að hér væri einn fundarstjóri. Ég vil aðeins segja við hv. þm. Pétur Blöndal að hafi ég á einhvern hátt misskilið ummæli hans hér áðan og talið að hér væri of langt gengið, þá vil ég þakka það að hann skuli taka undir þessi viðhorf og jafnvel á köflum vilja ganga aðeins lengra.