Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Ég hygg að það sé alls ekki af mínum völdum sem hv. þm. Ólafur Örn Haraldsson lagði upp í sína löngu ferð. Ég held að það hafi verið af einhverri annarri innri þrá sem hann lagði í þá ferð. Ég geri ráð fyrir því að við frekari meðferð málsins komi skýr afstaða þessara þingmanna í ljós og ég sannarlega vona það að þeir styðji þetta ágæta mál.