Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):
Virðulegi forseti. Við erum alveg sammála, ég og hv. þm., um það atriði að útilokað er að semja við aðila sem gera jafnmiklar kröfur og hér hefur komið fram, allt upp í 200% hækkun. Þess vegna hefur gengið hægar en skyldi að semja. En menn eru komnir nær raunveruleikanum í dag en þegar fyrstu kröfur voru uppi.