Ferill 26. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 26 – 26. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 8/1986, með síðari breytingum.
Flm.: Hjörleifur Guttormsson.
1. gr.
2. mgr. 1. gr. laganna orðast svo:
Sveitarfélög eru lögaðilar og ákveða sjálf nafngift sína sem þó þarf að hljóta staðfestingu félagsmálaráðuneytis.
2. gr.
Í stað orðsins „Kaupstaðir“ í 4. málsl. 4. mgr. 6. gr. laganna kemur: Öll sveitarfélög.
3. gr.
10. gr. laganna orðast svo:
Framkvæmdastjóri sveitarfélags nefnist sveitarstjóri, sbr. 69. gr. Formaður sveitarstjórnar nefnist oddviti. Sveitarstjórn er þó heimilt að gefa störfum sveitarstjóra og oddvita önnur heiti í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
4. gr.
Í stað 2. og 3. málsl. 1. mgr. 26. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Í fyrirsögn efst á kjörseðli skal tilgreina að um sé að ræða sveitarstjórnarkosningar í tilteknu sveitarfé
5. gr.
Orðin „borgarstjóri, bæjarstjóri eða sveitarstjóri“ í 1. mgr. 50. gr. laganna falla brott.
6. gr.
1. mgr. 55. gr. laganna orðast svo:
Sveitarstjórn er heimilt að ákveða í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins að kosið skuli byggðarráð og skal það kjörið úr hópi aðalfulltrúa í sveitarstjórn.
7. gr.
3. mgr. 69. gr. laganna fellur brott.
8. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Frumvarp þetta var lagt fram á 120. og 121. löggjafarþingi og er hér endurflutt óbreytt. Eftirfarandi greinargerð fylgdi frumvarpinu:
Með gildistöku sveitarstjórnarlaganna, nr. 8/1986, varð réttarstaða allra sveitarfélaga á Íslandi hin sama. Sýslufélög voru þá lögð niður og þar með urðu hreppar og kaupstaðir sam
Við framkvæmd sveitarstjórnarlaganna hafa komið í ljós ýmsir annmarkar á ákvæðum lag
Nú er svo fyrir mælt í 1. gr. sveitarstjórnarlaganna að sveitarfélög verði að bera eitthvert heitanna hreppur, bær eða kaupstaður. Enginn greinarmunur er í lögunum gerður á bæ og kaupstað sem hvorir tveggja verða að hafa haft 1.000 íbúa hið fæsta „í þrjú ár samfellt“. Hins vegar skuli sveitarfélög heita hreppar sé íbúafjöldi þeirra undir þessum mörkum. Engin rök eru til þess að mati flutningsmanns að viðhalda slíkri aðgreiningu með lagaboði auk þess sem viðbætur af þessu tagi fara oft ekki vel í íslensku máli. Einnig er óæskilegt vegna sameiningar sveitarfélaga sem víða er á döfinni að binda nafngiftir sveitarfélaga við tiltekna íbúatölu.
Breytingar samkvæmt frumvarpinu gera ráð fyrir að sveitarstjórn ráði nafni síns sveitarfé
Athygli vekur að nýlega hafa sveitarfélög tekið upp heitin byggð eða sveit sem hluta af sérnafni eða sem viðbót þótt engin stoð sé sjáanleg fyrir því í lögum og það stangist á við ákvæði núgildandi sveitarstjórnarlaga. Sýnir það eitt með öðru að þörf er á að rýmka laga
Ákvæði frumvarpsins um starfs- og stöðuheiti á vegum sveitarstjórna eru til verulegrar einföldunar frá gildandi lögum og til samræmis við þá stefnu að hætta að gera lögbundinn greinarmun á sveitarfélögum eftir íbúafjölda. Þannig breytt kvæðu lögin aðeins á um það að framkvæmdastjóri sveitarfélags nefndist sveitarstjóri og formenn sveitarstjórna oddvitar. Sveitarstjórnum verður þó í sjálfsvald sett að velja til viðbótar eða viðhalda öðrum sértækari stöðuheitum ef þær svo kjósa, eins og t.d. bæjarstjóri, borgarstjóri og forseti. Æskilegt væri þó og til skilningsauka fyrir almenning um eðli þessara starfa að ein aðalnafngift sé notuð um hliðstæð störf innan sveitarstjórnarstigsins.
Þá gerir frumvarpið ráð fyrir að aðeins heitið byggðarráð verði notað sem samheiti yfir fjárhags- og framkvæmdanefndir sveitarstjórna sem gengið hafa undir ýmsum nöfnum, svo sem bæjar-, borgar- eða hreppsráð. Þykir óheppilegt og ástæðulaust að viðhalda ólíkum nöfn
Margar umsagnir bárust til félagsmálanefndar um frumvarpið á 120. löggjafarþingi. Nokkrir umsagnaraðilar mæltu með samþykkt frumvarpsins eins og það er, aðrir töldu rétt að á málinu verði tekið í sambandi við heildarendurskoðun sveitarstjórnarlaga sem nú stendur yfir og enn aðrir gerðu ekki athugasemdir.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Lagt er til að sveitarfélögunum í landinu verði frjálst að ákveða nafn sitt og því felld niður sú skylda að þau skuli ýmist bera heitin hreppar, bæir eða kaupstaðir. Rétt þykir þó að gera ráð fyrir staðfestingu félagsmálaráðuneytisins. Þannig þarf ráðuneytið að staðfesta nafn hvers sveitarfélags og verður þannig t.d. hægt að koma í veg fyrir að tvö sveitarfélög velji svo svipuð nöfn að ruglingi geti valdið.
Um 2. gr.
Í samræmi við breytingar á 1. gr. laganna er lagt til að heimild til aðildar að héraðsnefnd
Um 3. gr.
Hér er lögð til sú breyting að framkvæmdastjóri sveitarfélags skuli bera heitið sveitarstjóri og formaður sveitarstjórnar heitið oddviti. Þó er með vísan til 69. gr. laganna lögð áhersla á að ekki er skylt að ráða framkvæmdastjóra sveitarfélags þar sem eru 500 íbúar eða færri. Þá er og gert ráð fyrir að sveitarstjórn sé heimilt að nefna störf sveitarstjóra og oddvita öðru heiti í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
Um 4. gr.
Breyting sú, sem hér er lögð til, er gerð til samræmis við aðrar breytingar og til skýringar og vísast til athugasemda við 1. gr.
Um 5. gr.
Hér vísast til athugasemda við 1. gr.
Um 6. gr.
Með breytingum á greininni er lagt til að ákvæði í 4. mgr. 10. gr. laganna frá 1986 þess efnis að fulltrúar í byggðarráði séu kosnir úr hópi aðalfulltrúa í sveitarstjórn verði tekið upp hér sem 1. mgr. 55. gr. þar sem rætt er um byggðarráð. Að öðru leyti vísast til athugasemda við 1. gr.
Um 7. gr.
Til samræmis við aðrar breytingar á lögunum er ákvæði 3. mgr. 69. gr. fellt brott. Vísast til athugasemda við 1. gr.
Um 8. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.