Ferill 200. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 209 – 200. mál.



Tillaga til þingsályktunar



um umboðsmann aldraðra.

Flm.: Guðmundur Hallvarðsson, Guðjón Guðmundsson,


Árni R. Árnason, Arnbjörg Sveinsdóttir.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að kanna forsendur fyrir stofnun embættis umboðs manns aldraðra sem sinni gæslu hagsmuna og réttinda aldraðra.

Greinargerð.


    Með hliðsjón af þeim staðreyndum að Íslendingar verða elstir allra þjóða, að um 27.000 Íslendingar eru 67 ára og eldri og að hlutfall aldraðra af heildaríbúafjölda fer vaxandi er mik il nauðsyn á að stjórnvöld taki tillit til hagsmuna aldraðra þegar teknar eru ákvarðanir sem þá varða.
    Mikinn hluta starfsævi sinnar eru einstaklingar að búa sig undir áhyggjulaust ævikvöld og taka þá mið af gildandi lögum og reglum um aldraða þegar lagt er í sameiginlega sjóði al mannatrygginga og séreignarsjóði lífeyrissjóðanna. Því er nauðsynlegt að stöðugleika sé gætt í hvívetna hvað varðar fjárhagslega afkomu aldraðra. Í vaxandi mæli eru byggðar fyrir aldr aða sérstakar íbúðir sem verða að fullnægja ákveðnum skilyrðum. Á því hefur því miður orð ið misbrestur enda þótt löggjafinn hafi reynt að hafa þar nokkur áhrif á.
    Fjöldi aldraðra á lögheimili sitt á dvalar- og hjúkrunarheimilum þar sem félagsleg og per sónuleg vandamál geta skapast, jafnvel deilumál milli nánustu ættingja um fjármál og eignir. Oft þurfa forstöðumenn og starfsfólk að blanda sér í slík mál til að gæta hagsmuna umbjóð enda sinna og því væri augljóslega léttir fyrir þá að geta vísað þeim til umboðsmanns.
    Umboðsmanni aldraðra væri ætlað að vinna að málum sem snerta sérstaklega hagsmuni aldraðra, fylgjast með því að stjórnvöld og einkaaðilar tækju fullt tillit til réttinda, þarfa og hagsmuna aldraðra og setja fram ábendingar og tillögur um úrbætur í málum er snerta hag aldraðra á öllum sviðum samfélagsins.
    Einnig væri umboðsmanni aldraðra ætlað að hafa frumkvæði að stefnumarkandi umræðu í samfélaginu um málefni aldraðra og stuðla að úrbótum á réttarreglum og stjórnsýslufyrir mælum er snerta aldraða.