Ferill 274. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 344 – 274. mál.



Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um nefndir á vegum landbúnaðarráðuneytisins.

Frá Lúðvík Bergvinssyni.



    Hversu margar nefndir hafa starfað á vegum landbúnaðarráðuneytisins frá 1. janúar 1995 til 1. júlí 1997? Óskað er eftir upplýsingum um heiti nefnda, nöfn nefndarmanna, þar sem formanna er getið sérstaklega, og kostnað við hverja nefnd miðað við hvert ár fyrir sig. Auk þess komi fram heildarkostnaður við nefndarstörf á vegum ráðuneytisins fyrrgreint tímabil, sundurliðað eftir árum.


Skriflegt svar óskast.