Ferill 470. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 803 – 470. mál.



Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 117/1993, með síðari breytingum.

Flm.: Ásta R. Jóhannesdóttir, Össur Skarphéðinsson.



1. gr.

    Við 2. mgr. 11. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá skulu þeir sem notið hafa ör orkulífeyris við 67 ára aldur halda öllum réttindum sínum, þar með talinni fjárhæð tekju tryggingar öryrkja, þegar þeir hefja töku ellilífeyris.

2. gr.


    Við 17. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Fjárhæð tekjutryggingar ellilífeyrisþega, sem fengu greiddan örorkulífeyri við 67 ára ald ur, skal ekki lækka við greiðslu ellilífeyris ef tekjur hlutaðeigandi hafa ekki breyst.

3. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Samkvæmt núgildandi lögum hafa greiðslur til þeirra sem fengið hafa greiddan örorkulíf eyri lækkað við það eitt að þeir verða 67 ára og hefja töku ellilífeyris. Skýring þessa er m.a. sú að skerðingarprósenta ellilífeyris skv. 2. mgr. 11. gr. almannatryggingalaga, nr. 117/1993, er 30% en skerðingarprósenta örorkulífeyris skv. 3. mgr. 12. gr. sömu laga er 25%. Auk þess hefst skerðing grunnlífeyris ellilífeyrisþega við lægri tekjumörk en grunnlífeyrir örorkulífeyrisþega, sbr. sömu ákvæði. Tekjutrygging öryrkja er einnig hærri en tekjutrygging ellilífeyrisþega. Hún lækkar um 779 kr. við það að hann verður 67 ára og fær greiddan elli lífeyri.
    Ef öryrkjar eiga að halda óbreyttum greiðslum frá almannatryggingum eftir að þeir ná ellilífeyrisaldri þarf að gera þær breytingar á almannatryggingalögunum sem hér eru lagðar til. Ljóst er að framfærslukostnaður öryrkja lækkar ekki við það eitt að hann nær 67 ára aldri. Öryrki, sem verið hefur óvinnufær lengi, jafnvel stóran hluta ævinnar og búið við fötl un af einhverju tagi, má búast við að fötlunin ágerist og kostnaður við að draga fram lífið aukist því frekar en minnki. Því er það ósanngjarnt að lækka greiðslur almannatrygginga til öryrkja við það eitt að þeir ná 67 ára aldri og hefja töku ellilífeyris.
    Framreikningur örorkulífeyris samkvæmt ákvæðum EES-samningsins leiðir oft til hlut fallslega hærri greiðslna en ellilífeyrisþegar fá með búsetunni einni saman. Því kunna greiðslur að lækka þegar viðkomandi hefur töku ellilífeyris. Þannig fær t.d. einstaklingur sem flytur frá Íslandi við 25 ára aldur til annars EES-lands og verður öryrki þar um þrítugt greiddan u.þ.b. 33/ 40 hluta örorkulífeyris frá Íslandi til 67 ára aldurs. Ef hann síðan flyttist hingað aftur eftir það fengi hann aðeins 9/ 40 hluta ellilífeyris. Viðkomandi ætti þó væntanlega meiri réttindi við töku ellilífeyris í landinu sem flust var til. Ekki er gert ráð fyrir að breyta þessu fyrirkomulagi með þessu lagafrumvarpi, en rétt þykir að benda á það misræmi sem skapast getur við framangreindar aðstæður.

Fylgiskjal.

Tryggingastofnun ríkisins:

Dæmi um tekjutengingu bóta almannatrygginga.


(Janúar 1998.)



Ellilífeyrir:

Einstaklingur með almennar tekjur.


Tekjur Grunnlífeyrir Tekjutrygging Heimilisuppót Sérstök heimilisuppbót
0 15.123 27.824 13.304 6.507
10.000 15.123 27.824 13.304 0
19.339 15.123 27.824 13.304 0
20.000 15.123 27.527 13.162 0
30.000 15.123 23.027 11.010 0
40.000 15.123 18.527 8.859 0
50.000 15.123 14.027 6.707 0
60.000 15.123 9.527 4.555 0
70.000 15.123 5.027 2.404 0
81.170 15.123 0 0 0
87.546 15.123 0 0 0
90.000 14.387 0 0 0
100.000 11.387 0 0 0
110.000 8.387 0 0 0
120.000 5.387 0 0 0
130.000 2.387 0 0 0
137.956 0 0 0 0

Einstaklingur með lífeyrissjóðstekjur.


Tekjur Grunnlífeyrir Tekjutrygging Heimilisuppót Sérstök heimilisuppbót
0 15.123 27.824 13.304 6.257
10.000 15.123 27.824 13.304 0
20.000 15.123 27.824 13.304 0
28.093 15.123 27.824 13.304 0
30.000 15.123 26.966 12.894 0
40.000 15.123 22.466 10.742 0
50.000 15.123 17.966 8.590 0
60.000 15.123 13.466 6.439 0
70.000 15.123 8.966 4.287 0
80.000 15.123 4.466 2.135 0
89.924 15.123 0 0 0

Hjón með almennar tekjur (annað hjóna).


Samanlagðar
tekjur
Viðmiðunar-
tekjur
Grunn-
lífeyrir
Tekju-
trygging
0 0 13.611 27.824
27.074 13.537 13.611 27.824
40.000 20.000 13.611 24.916
60.000 30.000 13.611 20.416
80.000 40.000 13.611 15.916
100.000 50.000 13.611 11.416
120.000 60.000 13.611 6.916
150.736 75.368 13.611 0

Hjón með lífeyrissjóðstekjur (annað hjóna).


Samanlagðar
tekjur
Viðmiðunar-
tekjur
Grunn-
lífeyrir
Tekju-
trygging
0 0 13.611 27.824
39.330 19.665 13.611 27.824
40.000 20.000 13.611 27.673
60.000 30.000 13.611 23.173
80.000 40.000 13.611 18.673
100.000 50.000 13.611 14.173
120.000 60.000 13.611 9.673
162.992 81.496 13.611 0

Örorkulífeyrir:

Einstaklingur með almennar tekjur.


Tekjur Grunn-
lífeyrir
Tekju-
trygging
Heimilis-
uppbót
Sérstök
heimilisuppbót
0 15.123 28.603 13.304 6.507
10.000 15.123 28.603 13.304 0
19.339 15.123 28.603 13.304 0
20.000 15.123 28.306 13.166 0
30.000 15.123 23.806 11.073 0
40.000 15.123 19.306 8.980 0
50.000 15.123 14.806 6.887 0
60.000 15.123 10.306 4.794 0
70.000 15.123 5.806 2.701 0
82.901 15.123 0 0 0
89.211 15.123 0 0 0
100.000 12.426 0 0 0
110.000 9.926 0 0 0
120.000 7.426 0 0 0
130.000 4.926 0 0 0
140.000 2.426 0 0 0
149.703 0 0 0 0

Einstaklingar með lífeyrissjóðstekjur.


Tekjur Grunn-
lífeyrir
Tekju-
trygging
Heimilis-
uppbót
Sérstök
heimilisuppbót
0 15.123 28.603 13.304 6.257
10.000 15.123 28.603 13.304 0
20.000 15.123 28.603 13.304 0
28.093 15.123 28.603 13.304 0
30.000 15.123 27.745 12.905 0
40.000 15.123 23.245 10.812 0
50.000 15.123 18.745 8.719 0
60.000 15.123 14.245 6.626 0
70.000 15.123 9.745 4.533 0
80.000 15.123 5.245 2.440 0
91.655 15.123 0 0 0

Hjón með almennar tekjur (annað hjóna).


Samanlagðar
tekjur
Viðmiðunar-
tekjur
Grunn-
lífeyrir
Tekju-
trygging
0 0 13.611 28.603
27.074 13.537 13.611 28.603
40.000 20.000 13.611 25.695
60.000 30.000 13.611 21.195
80.000 40.000 13.611 16.695
100.000 50.000 13.611 12.195
120.000 60.000 13.611 7.695
154.198 77.099 13.611 0

Hjón með lífeyrissjóðstekjur (annað hjóna).


Samanlagðar
tekjur
Viðmiðunar-
tekjur
Grunn-
lífeyrir
Tekju-
trygging
0 0 13.611 28.603
39.330 19.665 13.611 28.603
40.000 20.000 13.611 28.452
60.000 30.000 13.611 23.952
80.000 40.000 13.611 19.452
100.000 50.000 13.611 14.952
120.000 60.000 13.611 10.452
166.454 83.227 13.611 0

         Þegar sameiginlegar tekjur hjóna verða það háar að þau missa tekjutryggingu alveg er kannað hvort skerða á grunnlífeyrinn. Við þann útreikning er litið til tekna hvors um sig, en tekjunum ekki jafnað. Skerðing á grunnlífeyrinum verður eins og um einstakling væri að ræða.