Ferill 585. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 992 – 585. mál.



Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um heilsugæslumál á Eskifirði og Reyðarfirði.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



1.      Hvernig ætlar ráðuneytið að bæta á viðunandi hátt úr því ófremdarástandi sem ríkir í lækna- og heilbrigðismálum Eskifjarðarlæknishéraðs?
2.      Mun ráðuneytið verða við ósk bæjarstjórnar Eskifjarðar um að kaupa bústað fyrir heilsugæslulækni á Eskifirði?
3.      Hvernig hyggst ráðuneytið leysa húsnæðismál heilsugæslunnar á Reyðarfirði til frambúðar?