Ferill 445. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1392 – 445. mál.
Nefndarálit
um frv. til l. um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhalds
Frá minni hluta menntamálanefndar.
Í gildandi lögum um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, fram
Eftir umræðu í þjóðfélaginu um nauðsyn bætts skólastarfs veldur miklum vonbrigðum að ríkisstjórnin skuli leggja fram jafnmetnaðarlaust lagafrumvarp um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra og raun ber vitni.
Þrátt fyrir stór orð um mikilvægi þess að efla kennaramenntun í kjölfar TIMMS-rann
Í nefndaráliti meiri hlutans er því haldið fram að í frumvarpinu sé lögð áhersla á mikil
Minni hluti menntamálanefndar er sammála því að mikilvægt sé að auka fagþekkingu kennara. En forustuhlutverkið sem góðu fagfólki er oft falið í framhaldsskólunum í þróun kennslu í einstökum námsgreinum krefst þess ekki síður að þessir aðilar hafi trausta undir
Vandann við að ráða sérhæfða kennara í fámennum tæknigreinum eða öðrum greinum verður að leysa með skýrari ákvæðum í framannefndum greinum frumvarpsins, en ekki með því að skerða færni þeirra sem hafa mestu fagmenntunina til að miðla henni með því að draga úr menntun í kennslufræði.
Minni hlutinn mun flytja breytingartillögur við 12. og 21. gr. í sérstöku þingskjali og styður þær breytingartillögur meiri hlutans sem eru til bóta.
Alþingi, 8. maí 1998.
Sigríður Jóhannesdóttir,
frsm.
Guðný Guðbjörnsdóttir.
Svanfríður Jónasdóttir.