Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):
Herra forseti. Í skrá yfir þingmál ríkisstjórnarinnar sem dreift var með stefnuræðu forsrh. kemur fram að sjútvrh. hyggst flytja eitt mál á þessu þingi. Það er frv. til laga um breytingu á lögum um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða. Er þetta litla frv. sem hér var mælt fyrir það frv.? Felst í þessu þingmáli stefna og fyrirheit ríkisstjórnarinnar í málefnum sjávarútvegsins á þessum þingvetri?
Ég vek athygli á því, herra forseti, að efni frv. er einungis að seinka gildistöku.