Ferill 267. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 305  —  267. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um losun gróðurhúsalofttegunda frá flugvélum og stóriðju.

Frá Hjálmari Árnasyni.



     1.      Hver var áætluð losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi í innanlandsflugi annars vegar og millilandaflugi hins vegar árið 1997, mæld í koltvíoxíðsígildum?
     2.      Hver var áætluð losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi frá stóriðju árið 1997, mæld í koltvíoxíðsígildum?
     3.      Hver var áætluð losun gróðurhúsalofttegunda af sömu völdum í löndum Evrópusambandsins á sama tíma, mæld í koltvíoxíðsígildum?


Skriflegt svar óskast.