Ferill 220. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 262  —  220. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um samhengi milli sölu veiðiheimilda og verðbólgu.

Frá Bergljótu Halldórsdóttur.



     1.      Hefur sala á aflamarki og aflahlutdeild í sjávarútvegi leitt til aukins peningamagns í umferð síðustu fimm fiskveiðiár?
     2.      Ef svo er, má þá að einhverju leyti skýra núverandi þenslu og verðbólgu með því?


Skriflegt svar óskast.