Ferill 454. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 729 — 454. mál.
Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um fjölda starfsmanna ríkis og sveitarfélaga og veitingu húsnæðislána í kjördæmum.
Frá Margréti K. Sverrisdóttur.
1. Hver er fjöldi starfsmanna á vegum sveitarfélaga í einstökum kjördæmum og hvernig hefur hann breyst síðustu tíu ár?
2. Hver er fjöldi starfsmanna á vegum ríkisins í einstökum kjördæmum og hvernig hefur hann breyst síðustu tíu ár?
3. Hvernig hefur veitingu húsnæðislána verið háttað síðustu tíu ár, sundurliðað eftir kjördæmum?
Skriflegt svar óskast.