Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1363, 125. löggjafarþing 630. mál: meðferð, vinnsla og dreifing sjávarafurða (innflutningur frá frystiskipum).
Lög nr. 91 22. maí 2000.
Þingskjal 1363, 125. löggjafarþing 630. mál: meðferð, vinnsla og dreifing sjávarafurða (innflutningur frá frystiskipum).
Lög nr. 91 22. maí 2000.
Lög um breytingu á lögum nr. 55 10. júní 1998, um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, með síðari breytingum.
1. gr.
Við 3. mgr. 22. gr. laganna bætist nýr málsliður sem orðast svo: Ráðherra getur í reglugerð kveðið á um að 1. málsl. skuli einnig eiga við um fiskiskip þar sem aðeins fer fram frysting um borð á heilum eða hausskornum fiski eða heilfrysting rækju.2. gr.
Í stað orðanna „eða vinnsluskipi“ í 1. mgr. 26. gr. laganna kemur: vinnsluskipi eða frystiskipi, sbr. 2. málsl. 3. mgr. 22. gr.3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 10. maí 2000.