Frsm. meiri hluta heilbr.- og trn. (Jónína Bjartmarz) (andsvar):
Herra forseti. Svo sem fram kemur í nefndaráliti meiri hlutans var fjöldi manna kvaddur á fund nefndarinnar til þess að fjalla um þessi mál. Það sem við höfum hér vísað í eru fyrst og fremst álit lögfræðinga sem lúta að fyrningu. Ég minnist þess ekki að á fundi hv. heilbr.- og trn. hafi mikið verið rætt um siðferði.