Jón Bjarnason:
Herra forseti. Ég ítreka spurningu mína til hæstv. iðnrh.: Mun ráðherrann ganga í málið? Það virðist ljóst að þarna þurfi að koma til aukin vinna og betra skipulag. Málið heyrir undir hæstv. iðnrh. Hæstv. ráðherra getur ekki vikið sér undan því þar eð aðkoma þingsins að Byggðastofnun er í gegnum hæstv. ráðherra. Ég ítreka spurningu mína, herra forseti: Ætlar hæstv. iðnrh. ekki að ganga þegar í stað í þetta mál?