Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. Hæstv. ráðherra sagði að það væri ekki endanlega búið að ákveða hvort stofnunin yrði lögð niður. Aftur á móti hefur áður komið fram að áform séu uppi um það hjá ráðherrum. Málið er í vinnslu. Hversu langan tíma telur hæstv. ráðherra að það taki að vinna málið þannig að niðurstaða fáist um hvort stofnunin verði lögð niður og hvenær mun það koma til kasta þingsins?