Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem Davíð Oddsson, 1. þm. Reykv., er á förum til útlanda í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að óska þess að 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavík, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.
Þetta tilkynnist yður hér með, herra forseti.
Sigríður A. Þórðardóttir,
formaður þingflokks Sjálfstfl.``
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.