Eftirlit með útlendingum

Fimmtudaginn 07. desember 2000, kl. 11:04:05 (2887)

2000-12-07 11:04:05# 126. lþ. 43.2 fundur 284. mál: #A eftirlit með útlendingum# (beiðni um hæli) frv., dómsmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 126. lþ.

[11:04]

Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að það sé orðið nokkuð skýrt núna hvað hv. þm. er að spyrja um. Til þess að svara spurningu hennar bendi ég á 4. og 8. gr. Dyflinnarsamningsins sem er fylgiskjal með þessu frv. Af þessum ákvæðum samningsins leiðir að Ísland ber ekki ábyrgð í því tilviki sem hv. þm. spyr hér um ef þau ákvæði eiga ekki við.