Jónína Bjartmarz (andsvar):
Herra forseti. Ég vil eingöngu leiðrétta það að með umræddu frv., 284. máli að mig minnir, sem var til umræðu í hv. allshn. hafi verið ætlunin að lögleiða Dyflinnarsamninginn. Bæði ég og hv. þm. Lúðvík Bergvinsson vitum að hann verður ekki lögfestur á þann hátt heldur þarf að leggja fyrir Alþingi þingsályktunartillögu um lögfestingu hans.