Ferill 109. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 109  —  109. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um störf nefndar um jarðskjálftavá.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



    Hvað líður störfum þeirrar nefndar sem ríkisstjórnin skipaði til að leggja mat á tillögur og móta nýjar á grundvelli starfs nefndar sem skipuð var af fyrrverandi umhverfisráðherra, Guðmundi Bjarnasyni, til þess að fjalla um jarðskjálftavá og gera tillögur um aðgerðir til að draga úr hættu af völdum jarðskjálfta og skilaði af sér í september 1996?