Ferill 110. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 110  —  110. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um fjölda skipstjórnarmanna og vélstjóra á fiskiskipum og kaupskipum.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



     1.      Hve margar stöður yfirmanna eru nú við skipastól Íslendinga og hvernig skiptast þær milli skipstjórnarmanna og vélstjóra
                  a.      á fiskiskipum,
                  b.      á kaupskipum?
     2.      Hve margir skipstjórnarmenn og vélstjórar þurfa að útskrifast á ári hverju svo ekki verði skortur á fólki með slíka menntun?