Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 616, 126. löggjafarþing 283. mál: fjáröflun til vegagerðar (þungaskattur).
Lög nr. 165 21. desember 2000.
Kílómetragjald ökutækja skv. 1. mgr. þessa stafliðar skal vera sem hér segir:
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 5. gr. eru bifreiðar, sem nota í tilraunaskyni annan orkugjafa en bensín, dísilolíu eða annað eldsneyti unnið úr olíu, undanþegnar greiðslu þungaskatts frá gildistöku laga þessara til 31. desember 2002.
Ákvæði til bráðabirgða.
Ný gjaldskrá B-liðar 4. gr. laganna tekur gildi 11. febrúar 2001. Nýja gjaldið fyrir hvern ekinn kílómetra tekur gildi strax að loknu fyrsta álestrartímabili sem er frá 20. janúar til 10. febrúar 2001, sbr. 2. mgr. B-liðar 7. gr. laganna. Sé ekki komið með ökutæki til álestrar á réttum tíma skal reikna út meðaltal ekinna kílómetra á dag á tímabilinu milli álestra. Þá skal hið nýja gjald innheimt eftir meðaltalsakstri eftir lok fyrrgreinds álestrartímabils.
Þingskjal 616, 126. löggjafarþing 283. mál: fjáröflun til vegagerðar (þungaskattur).
Lög nr. 165 21. desember 2000.
Lög um breytingu á lögum nr. 3/1987, um fjáröflun til vegagerðar, með síðari breytingum.
1. gr.
2. mgr. B-liðar 4. gr. laganna orðast svo:Kílómetragjald ökutækja skv. 1. mgr. þessa stafliðar skal vera sem hér segir:
Leyfð heildarþyngd | Kílómetragjald, | Leyfð heildarþyngd | Kílómetragjald, |
ökutækis, kg | kr. | ökutækis, kg | kr. |
4.000–4.999 | 6,40 | 18.000–18.999 | 15,38 |
5.000–5.999 | 6,80 | 19.000–19.999 | 16,56 |
6.000–6.999 | 7,35 | 20.000–20.999 | 17,44 |
7.000–7.999 | 7,72 | 21.000–21.999 | 18,45 |
8.000–8.999 | 8,06 | 22.000–22.999 | 19,61 |
9.000–9.999 | 8,42 | 23.000–23.999 | 20,55 |
10.000–10.999 | 8,94 | 24.000–24.999 | 21,47 |
11.000–11.999 | 9,27 | 25.000–25.999 | 22,52 |
12.000–12.999 | 10,08 | 26.000–26.999 | 23,52 |
13.000–13.999 | 10,80 | 27.000–27.999 | 24,57 |
14.000–14.999 | 11,64 | 28.000–28.999 | 25,61 |
15.000–15.999 | 12,53 | 29.000–29.999 | 26,66 |
16.000–16.999 | 13,53 | 30.000–30.999 | 27,70 |
17.000–17.999 | 14,51 | 31.000 og yfir | 28,75 |
2. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 5. gr. eru bifreiðar, sem nota í tilraunaskyni annan orkugjafa en bensín, dísilolíu eða annað eldsneyti unnið úr olíu, undanþegnar greiðslu þungaskatts frá gildistöku laga þessara til 31. desember 2002.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi að undanskilinni 1. gr. laganna sem öðlast gildi 11. febrúar 2001.Samþykkt á Alþingi 16. desember 2000.