Ferill 404. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 656  —  404. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um skýrslu Byggðastofnunar um stöðu sjávarbyggða.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Hvernig hyggst ráðherra byggðamála fylgja eftir skýrslu Byggðastofnunar um stöðu sjávarbyggða sem út kom í desember sl.?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér gagnvart nefnd um endurskoðun á stjórnkerfi fiskveiða í ljósi veikrar stöðu minni sjávarbyggða, sbr. áðurnefnda skýrslu, sem rekja má m.a. til ótryggs aðgangs að veiðiheimildum?