Ferill 492. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 778  —  492. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um Íslenska aðalverktaka hf.

Frá Gísla S. Einarsson.



     1.      Er unnið að sölu hlutar ríkisins í Íslenskum aðalverktökum hf., sem gert er ráð fyrir skv. 7. gr. fjárlaga?
     2.      Hefur verðgildi eignarhlutarins vaxið eða rýrnað sl. ár?
     3.      Hverjar eru afkomuhorfur fyrirtækisins sl. 10 mánuði varðandi verktöku og verkaskil:
                  a.      á Vatnsfellssvæðinu,
                  b.      í öðrum verkum?