Ferill 657. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Nr. 18/126.
Þskj. 1287 — 657. mál.
Þingsályktun
um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2001.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2001 sem gengið var frá með orðsendingaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 12. febrúar og 2. mars 2001.
Samþykkt á Alþingi 11. maí 2001.