Ferill 484. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1466 — 484. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 27/1981, um rétt manna til að kalla sig viðskiptafræðinga eða hagfræðinga.
(Eftir 2. umr., 19. maí.)
1. gr.
Rétt til að kalla sig viðskiptafræðinga, hagfræðinga eða nota heiti sem felur í sér orðin viðskiptafræðingur eða hagfræðingur hafa þeir menn hér á landi sem fengið hafa til þess leyfi viðskiptaráðherra. Þeir sem lokið hafa BS- eða cand. oecon.-prófi úr viðskiptadeild eða BS- prófi úr hagfræðideild viðurkennds íslensks háskóla eða meistaranámi úr framangreindum deildum, sbr. lög nr. 136/1997, um háskóla, þurfa ekki slíkt leyfi ráðherra.
2. gr.
Áður en leyfi er veitt skv. 1. og 2. mgr. þessarar greinar skal leita álits þriggja manna nefndar sem ráðherra skipar á eftirfarandi hátt: Einn nefndarmaður samkvæmt tilnefningu Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga og tveir samkvæmt tilnefningu ráðherra og skal annar þeirra vera formaður nefndarinnar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
3. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.