Ferill 165. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 166  —  165. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um Þróunarsjóð sjávarútvegsins.

Frá Guðjóni A. Kristjánssyni.



     1.      Hver var afkoma Þróunarsjóðs sjávarútvegsins árin 1997–2000?
     2.      Hver var afkoma atvinnutryggingadeildar árin 1997–2000?
     3.      Hver var afkoma hlutafjárdeildar árin 1997–2000?
     4.      Hvaða fjárhæðir hafa verið færðar til baka af afskriftareikningum árin 1997–2000?
     5.      Hversu mikið hafði áður verið bakfært af afskriftareikningum sem tekjur árin 1994– 1996?
     6.      Frá hvaða kaupstöðum eða sveitarfélögum koma bakfærðar tekjur? Sundurliðun óskast eftir upphæðum á hvert byggðasvæði.
    Svör við fyrstu þremur spurningunum óskast sundurliðuð eftir upphæð vaxta, formi verðbréfa, vaxtagjöldum og rekstri.


Skriflegt svar óskast.