Ferill 214. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 239 — 214. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um rannsóknir á áhrifum veiðarfæra.
Frá Svanfríði Jónasdóttur.
1. Hve margir veiðarfærasérfræðingar eru starfandi á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar og hvar á landinu eru þeir staðsettir?
2. Hvaða rannsóknir eru í gangi á vegum stofnunarinnar á áhrifum veiðarfæra á lífríki sjávar?
Skriflegt svar óskast.