Ferill 215. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 240  —  215. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um þorskveiði smábáta.

Frá Svanfríði Jónasdóttur.



     1.      Hve mikið af heildarþorskaflanum var tekið á krókabáta á fiskveiðiárunum 1999/2000 og 2000/2001? Svar óskast bæði í aflahlutdeild og aflamarki.
     2.      Hve mikið af þeim þorskafla var hlutdeild krókabáta og hve mikið var flutt til þeirra úr aflamarkskerfinu þessi sömu ár?


Skriflegt svar óskast.