Ferill 296. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 361  —  296. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um Íslenska getspá.

Frá Guðrúnu Ögmundsdóttur.



     1.      Hver hefur ágóði Íslenskrar getspár, félags Íþróttasambands Íslands, Ungmennafélags Íslands og Öryrkjabandalags Íslands um rekstur getrauna, verið síðastliðin fimm ár?
     2.      Til hverra hefur ágóðinn runnið á hverju ári síðastliðin fimm ár og hversu mikið fé hafa þeir fengið árlega?
     3.      Er fyrirhuguð endurskoðun á lögum nr. 26/1986, um talnagetraunir?


Skriflegt svar óskast.