Ferill 137. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 734  —  137. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á iðnaðarlögum, nr. 42/1978, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 4. febr.)



1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:
     a.      1. mgr. orðast svo:
                  Lögreglustjóri, þar sem aðili á lögheimili, lætur af hendi meistarabréf og iðnaðarleyfi.
     b.      3. mgr. orðast svo:
                  Iðnaðarráðherra gefur út sveinsbréf. Hann getur falið öðrum að gefa bréfin út að fullnægðum skilyrðum laga.

2. gr.

    14. gr. laganna fellur brott.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi. Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á lögum nr. 64/1934, um viðauka við lög nr. 29 8. nóvember 1895, um hagfræðiskýrslur: Orðin „í samráði við iðnráð Reykjavíkur“ í niðurlagi 1. gr. falla brott.