Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í janúar 2002. Útgáfa 127a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um viðauka við lög nr. 29 8. nóvember 1895, um hagfræðiskýrslur
1934 nr. 64 10. desember
1. gr. Iðnfyrirtæki þau, sem eru tryggingarskyld samkvæmt lögum nr. 72 8. september 1931, um slysatryggingar, 1) eru skyld til að láta hagstofunni árlega í té skýrslu um magn og verð framleiðslu sinnar, um notkun hráefna og aðstoðarefna, um tölu og samanlagðan vinnutíma verkamanna og starfsmanna ásamt útborguðu vinnukaupi, svo og aðrar upplýsingar um fyrirtækið samkvæmt eyðublöðum, sem hagstofan semur í samráði við iðnráð Reykjavíkur.
1)Nú l. 117/1993.
2. gr. Útgerðir innlendra skipa, sem notuð eru til farþega- eða vöruflutninga, eru skyldar til að láta hagstofunni í té skýrslur um hverja ferð skipanna, þar sem tilgreind sé í réttri tímaröð hver höfn, sem skipið hefur komið á, ásamt því vörumagni, sem það hefur lagt þar á land eða tekið þar til flutnings, svo og tölu farþega frá hverjum stað og til hvers staðar. Sama skylda hvílir á útgerðum erlendra skipa, sem eru í áætlunarferðum milli hafna hér á landi eða milli Íslands og útlanda, og ber aðalafgreiðsla útgerðarinnar hér á landi ábyrgð á því, að skýrslum þessum sé skilað til hagstofunnar í tæka tíð. Enn fremur skulu skipamiðlarar skyldir til að láta hagstofunni í té sams konar skýrslur um öll þau skip, sem þeir leigja til og frá landinu.
3. gr. Eigendur flutningstækja, sem hafa atvinnu af fólksflutningum eða vöruflutningum á þjóðvegum og hafa að minnsta kosti einn bíl í förum, skulu skyldir að láta í té, minnst árlega, skýrslur um flutninga samkvæmt skýrslueyðublöðum, er hagstofan semur.
4. gr. Um skýrslur þær, sem um ræðir í 1. og 2. gr. laga þessara, gilda hin almennu fyrirmæli laga nr. 29 8. nóvember 1895.