Ferill 570. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 892 — 570. mál.
Fyrirspurn
til iðnaðarráðherra um verð á raforku frá Kárahnjúkavirkjun.
Frá Ögmundi Jónassyni.
1. Hvert verður samningsbundið upphafsverð á raforku frá Kárahnjúkavirkjun til Reyðaráls ef af framkvæmdum verður?
2. Hvert verður áætlað meðalverð á raforku á samningstímanum og á hvaða forsendum er það mat byggt hvað varðar þróun álverðs og aðra þætti sem máli skipta?
Skriflegt svar óskast.