Ferill 611. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 958  —  611. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um kindakjötsframleiðslu.

Frá Drífu Hjartardóttur.



     1.      Hvað jókst kindakjötsframleiðsla mikið árlega frá 1998 til ársloka 2001?
     2.      Hver var birgðastaða kindakjöts í lok hvers árs 1998–2001?
     3.      Hver var árleg framleiðsla kindakjöts hjá framleiðendum án greiðslumarks í sauðfjárframleiðslu sömu ár?


Skriflegt svar óskast.