Ferill 680. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1278 — 680. mál.
Nefndarálit
um till. til þál. um breyt. á vegáætlun fyrir árin 2000–2004.
Frá meiri hluta samgöngunefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Jóhann Guðmundsson frá samgönguráðuneyti og Helga Hallgrímsson og Jón Rögnvaldsson frá Vegagerðinni.
Sú vegáætlun sem hér er til umræðu er frábrugðin fyrri áætlunum að því leyti að hún tekur eingöngu til eins árs. Ástæður þessa eru raktar í framhaldsnefndaráliti meiri hluta nefndarinnar með frumvarpi til laga um breytingar á lagaákvæðum er varða samgönguáætlun o.fl., 385. mál, og vísast til þess sem þar segir, en samhliða því áliti leggur nefndin til breytingu sem veitir Alþingi heimild til að samþykkja vegáætlun í því formi sem hér er lagt til.
Í fjárlögum fyrir árið 2002 er gert ráð fyrir frestun stofnkostnaðarframkvæmda fyrir 1.519 m.kr. á þessu ári. Við þessa fjárhæð bætist frestun framkvæmda á árinu 2001 að fjárhæð 700 m.kr. Nefndin hefur tekið málið til skoðunar í samstarfi við Vegagerðina og þingmenn einstakra kjördæma og birtist niðurstaða meiri hluta nefndarinnar á frestun framkvæmda og sundurliðun útgjalda í breytingartillögu meiri hlutans.
Samkvæmt niðurstöðu meiri hlutans deilist frestun á framkvæmdum milli einstakra landshluta þannig:
1. Suðurland 76 m.kr.
2. Reykjanes 20 m.kr.
3. Vesturland 79 m.kr.
4. Vestfirðir 75 m.kr.
5. Norðurland vestra 55 m.kr.
6. Norðurland eystra 76 m.kr.
7. Austurland 79 m.kr.
8. Höfuðborgarsvæðið 329 m.kr.
Að auki er lögð til frestun á framkvæmdum í einstökum flokkum framkvæmda, sbr. sundurliðun framkvæmda í breytingartillögu:
1. Brúarframkvæmdir 60 m.kr.
2. Jarðgangaframkvæmdir 1.150 m.kr.
3. Orku- og iðjuvegir á Austurlandi 200 m.kr.
4. Landsvegir 10 m.kr.
5. Safnvegir 10 m.kr.
Sundurliðun útgjalda samkvæmt breytingartillögu meiri hlutans er í samræmi við þetta en jafnframt hefur verið tekið tillit til frestunar framkvæmda 2001 fyrir 700 m.kr. og endurgreiðslu þeirra.
Í fylgiskjali með nefndarálitinu er listi yfir skuldir og skuldbindingar sem mæta þarf á árunum 2003 og 2004. Þetta er nauðsynlegt með hliðsjón af því að vegáætlun sú sem hér um ræðir nær aðeins til eins árs.
Meiri hlutinn telur að stefna skuli að því að bjóða út fyrirhugaða breikkun á Reykjanesbraut í stærri áföngum en áætlað hefur verið til að auka hagkvæmni framkvæmdarinnar og draga úr slysahættu. Ljóst er að á móti verður að draga úr öðrum framkvæmdum á svæðinu. Endanleg ákvörðun Alþingis um þetta atriði bíður næsta hausts.
Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt með breytingu sem gerð er grein fyrir í sérstöku þingskjali.
Alþingi, 18. apríl 2002.
Guðmundur Hallvarðsson,
form., frsm.
Hjálmar Árnason.
Arnbjörg Sveinsdóttir.
Magnús Stefánsson.
Þorgerður K. Gunnarsdóttir.
Sigríður Ingvarsdóttir.
Fylgiskjal.
Listi yfir:
Skuldir og skuldbindingar
sem mæta þarf á árunum 2003 og 2004
1. Stofnvegir.
1.1. Almenn verkefni og 1.3. Stórverkefni.
Vegnr. Vegheiti 2002 2003 2004
Kaflanr. Kaflaheiti m.kr. m.kr. m.kr.
1 Hringvegur
a2 Um Djúpá og Laxá 20
a6 Um Skaftá 12
b3 Um Vík 4
c8 Um Þjórsá 118
30 Hrunamannavegur
08 Flúðir – Biskupstungnabraut 36
32 Þjórsárdalsvegur
02 Stóranúpsvegur – Ásólfsstaðir 17
08-09 Laugarvatnsvegur – Gullfoss 36
41 Reykjanesbraut
15-18 Breikkun 359 292
1 Hringvegur
Hvalfjarðartengingar 63 63
g6 Borgarnes 34
h0 Borgarfjarðarbraut – Grafarkot 12
50 Borgarfjarðarbraut
02 Vatnshamraleið 52 46
54 Snæfellsnesvegur
10 Bjarnarfoss – Egilsskarð 19
10 Sæluhús – Valavatn 16
Vegnr. Vegheiti 2002 2003 2004
Kaflanr. Kaflaheiti m.kr. m.kr. m.kr.
56 Vatnaleið 20
60 Vestfjarðavegur
01 Brattabrekka 37 99
531 Borgarbraut
01 Brákarsund 5
60 Vestfjarðavegur
21 Gilsfjörður 21 15
29-31 Múli – Vattarnes 206 187
44 Gemlufallsheiði 51
61 Djúpvegur
31 Gilseyri – Kleifaós 45
45 Hnífsdalur – Bolungarvík 9
62 Barðastrandarvegur
04 Kleifaheiði 57
636 Hafnarvegur Ísafirði
01 Djúpvegur – höfn 16
1 Hringvegur
k8 Um Vatnsdalsá 72
74 Skagastrandarvegur 23
1 Hringvegur
q9 Mývatnsheiði 175
85 Norðausturvegur
09 Tjörnes: Bangastaðir – Víkingavatn 272
24 Um Svalbarðsá 16
1 Hringvegur
s1-s2 Biskupsháls – Vegaskarð 141 34
s8-s9 Hofteigur – Hrólfsstaðir 114
t5 Stóra-Sandfell – Litla Sandfell 19
t9-u0 Ásunnarstaðir – Heydalir 65
34-35 Hölkná – Miðheiðarhryggur 61 85
93 Seyðisfjarðarvegur
06 Við ferjuhöfn 35 5
Samtals 2.246 838
1.2. Höfuðborgarsvæðið.
Vegnr. Vegheiti 2002 2003 2004
Kaflanr. Kaflaheiti m.kr. m.kr. m.kr.
41 Reykjanesbraut
11 Gatnamót við Stekkjarbakka 520 50
12 Fífuhvammsvegur – Kaplakriki 420 30
14 Í Hafnarfirði 350
Samtals 1.290 80
2. Jarðgangaáætlun.
Vegnr. Vegheiti 2002 2003 2004
Kaflanr. Kaflaheiti m.kr. m.kr. m.kr.
Siglufj. – Ólafsfj. og Reyðarfj. – Fáskrúðsfj. 1.500 1.500
Samtals 1.500 1.500
3. Tengivegir.
Vegnr. Vegheiti 2002 2003 2004
Kaflanr. Kaflaheiti m.kr. m.kr. m.kr.
26 Landvegur
02 Holtsmúli – Fellsmúli 35 32
204 Meðallandsvegur
Ásgarður – Fossar 9
254 Hólmavegur
01 Landeyjavegur – flugvöllur 15
33 Gaulverjabæjarvegur
01 Önundarholtsv. – Skipar 12
508 Skorradalsvegur
01 Fossamelar – Borgarfjarðarbraut 21
645 Drangsnesvegur
01 Reykjarnes – Drangsnes 50
807 Skíðadalsvegur
01 Um Skíðadals- og Svarfaðardalsá 15
94 Borgarfjarðarvegur
07 Á Vatnsskarði 12 18
931 Upphéraðsvegur
01 Ekkjufell – Setberg 44 14
939 Axarvegur
01-02 Skriðdalur – Berufjörður 11 17
Samtals 209 96
4. Til brúagerðar.
1. Brýr, 10 m og lengri.
2002 2003 2004
m.kr. m.kr. m.kr.
Skaftá (1). 50
Laugaá (35) 14
Samtals 64
5. Ferðamannaleiðir.
Vegnr. Vegheiti 2002 2003 2004
Kaflanr. Kaflaheiti m.kr. m.kr. m.kr.
Vegir í Vestmannaeyjum 5
508 Skorradalsvegur
01 Fossamelar – Borgarfjarðarbraut 15
574 Útnesvegur
04 Hella – Hellissandur 16
586 Haukadalsvegur 4
5710 Arnarstapavegur 11
5714 Lýsuhólsvegur 8
793 Skarðsvegur
01 Flugvallarvegur – skíðasvæði 3
837 03 Hlíðarfjallsvegur 35
953 Mjóafjarðarvegur 35
Samtals 113 19
Yfirlit
2002 2003 2004
m.kr. m.kr. m.kr.
Almenn verkefni og Stórverkefni. 2.246 838
Höfuðborgarsvæðið 1.290 80
Jarðgangaáætlun 1.500 1.500
Tengivegir 209 96
Brýr, 10 m og lengri 64
Ferðamannaleiðir 113 19
Samtals 5.422 2.533