Ferill 359. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1356 — 359. mál.
Breytingartillaga
við frv. til l. um breyt. á l. um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð, lögum um málefni aldraðra, lögum um heilbrigðisþjónustu og sóttvarnalögum.
Frá Jónínu Bjartmarz.
Við 14. gr.
a. E-liður 1. efnismgr. falli brott.
b. Við bætist ný málsgrein er verði 2. efnismgr. og orðist svo:
Þá skal Tryggingastofnun greiða kostnað vegna psoriasissjúklinga sem að mati sérfræðinga þurfa að leita læknishjálpar á meðferðarstofnunum psoriasissjúklinga sem komi í stað sjúkrahúsvistar.