Ferill 511. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1378  —  511. mál.




Svar



dómsmálaráðherra við fyrirspurn Hjálmars Árnasonar um umferð á Reykjanesbraut.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hefur orðið mælanleg breyting á umferðarhraða og tíðni umferðaróhappa á Reykjanesbraut eftir að embætti sýslumanna í Hafnarfirði, Keflavík og á Keflavíkurflugvelli hófu markvisst eftirlit á brautinni?

    Eftirlit var aukið árið 2000. Mat lögreglustjóraembættanna er að umferðarhraðinn hafi minnkað, einkum fyrstu mánuðina. Engu að síður er hann enn of mikill. Lögreglan hefur lagt áherslu á að jafna hraðann og gera aksturinn hindrunarlausan og telur að þannig megi fækka umferðaróhöppum. Tölur um árangur af hertu eftirliti lögreglunnar eru sem hér segir:

    Árið 2000.
    1.905 kærðir fyrir of hraðan akstur.
    213 umferðaróhöpp – 40 slys í þessum óhöppum, 4 banaslys.
    69 kærðir fyrir ölvun við akstur.

    Árið 2001.
    2.063 kærðir fyrir of hraðan akstur.
    167 umferðaróhöpp – 28 slys í þessum óhöppum, 1 banaslys.
    61 kærðir fyrir ölvun við akstur.

    Vegagerðin hefur um árabil mælt hraða á Reykjanesbraut með ratsjá. Einungis er mældur hraði þeirra bifreiða sem eru á frjálsri ferð, þ.e. óháðar öðrum bifreiðum. Niðurstaða Vegagerðarinnar er að litlar breytingar hafi orðið á meðalhraða í umferðinni á þeim tíma sem hér um ræðir. Þó kunni að hafa dregið úr ofsaakstri á Reykjanesbraut, en um það verði ekkert fullyrt á þessu stigi.