Ferill 318. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1412 — 318. mál.
Frumvarp til barnaverndarlaga.
(Eftir 2. umr., 29. apríl.)
I. KAFLI
Markmið barnaverndarlaga o.fl.
1. gr.
Réttindi barna og skyldur foreldra.
Foreldrum ber að sýna börnum sínum umhyggju og nærfærni og gegna forsjár- og uppeldisskyldum við börn sín svo sem best hentar hag og þörfum þeirra. Þeim ber að búa börnum sínum viðunandi uppeldisaðstæður og gæta velfarnaðar þeirra í hvívetna. Aðrir sem koma að uppeldi barna skulu sýna þeim virðingu og umhyggju.
2. gr.
Markmið og lögsaga.
Lögin taka til allra barna sem eru á yfirráðasvæði íslenska ríkisins.
3. gr.
Skýring hugtaka.
Með barnaverndaryfirvöldum er átt við félagsmálaráðuneytið, Barnaverndarstofu, kærunefnd barnaverndarmála og barnaverndarnefndir.
Með foreldrum er að jafnaði átt við þá sem fara með forsjá barns. Um inntak forsjár fer samkvæmt ákvæðum barnalaga.
4. gr.
Meginreglur barnaverndarstarfs.
Í störfum sínum skulu barnaverndaryfirvöld taka tillit til sjónarmiða og óska barna eftir því sem aldur þeirra og þroski gefur tilefni til.
Barnaverndarstarf skal stuðla að stöðugleika í uppvexti barna.
Barnaverndaryfirvöld skulu leitast við að eiga góða samvinnu við börn og foreldra sem þau hafa afskipti af og ávallt sýna þeim fyllstu nærgætni og virðingu.
Barnaverndaryfirvöld skulu í störfum sínum leitast við að hafa góða samvinnu sín á milli og við aðrar stofnanir sem fjalla um málefni barna.
Barnaverndaryfirvöld skulu í störfum sínum og öllum ákvörðunum gæta samræmis og jafnræðis.
Barnaverndaryfirvöld skulu eftir föngum gæta þess að almenn úrræði til stuðnings fjölskyldu séu reynd áður en gripið er til annarra úrræða. Þau skulu jafnframt ávallt miða við að beitt sé vægustu ráðstöfunum til að ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Því aðeins skal gert ráð fyrir íþyngjandi ráðstöfunum að lögmæltum markmiðum verði ekki náð með öðru og vægara móti.
Allir þeir sem vinna að barnavernd skulu gæta fyllsta trúnaðar um hagi barna, foreldra og annarra sem þeir hafa afskipti af.
II. KAFLI
Yfirstjórn barnaverndarmála.
5. gr.
Hlutverk félagsmálaráðuneytisins.
Félagsmálaráðuneytið ber ábyrgð á stefnumótun í barnavernd.
Ráðherra leggur fyrir Alþingi framkvæmdaáætlun til fjögurra ára í senn að loknum sveitarstjórnarkosningum.
Félagsmálaráðuneytið skal hafa eftirlit með starfi Barnaverndarstofu. Það getur krafist upplýsinga um einstök mál á grundvelli kvartana eða annarra upplýsinga.
6. gr.
Kærunefnd barnaverndarmála.
Í kærunefnd barnaverndarmála sitja þrír menn. Hæstiréttur tilnefnir formann og skal hann uppfylla hæfisskilyrði til að vera héraðsdómari. Nefndarmenn skulu hafa sérþekkingu á málefnum barna. Félagsmálaráðherra sér nefndinni fyrir starfsaðstöðu. Kærunefnd er heimilt að ráða starfsmenn til að sinna daglegum rekstri.
Úrskurðir kærunefndar barnaverndarmála eru endanlegir á stjórnsýslustigi og verður þeim ekki skotið til æðra stjórnvalds.
Kærunefnd barnaverndarmála skal árlega gefa út skýrslu um starfsemi sína.
Félagsmálaráðherra setur reglugerð um störf nefndarinnar.
7. gr.
Barnaverndarstofa.
Barnaverndarstofa skal vinna að samhæfingu og eflingu barnaverndarstarfs í landinu og vera félagsmálaráðherra til ráðgjafar um stefnumótun í málaflokknum. Hún skal hlutast til um að fram fari þróunar- og rannsóknastarf á sviði barnaverndar.
Barnaverndarstofa skal hafa með höndum leiðbeiningar um túlkun og framkvæmd barnaverndarlaga og fræðslu og ráðgjöf fyrir barnaverndarnefndir í landinu. Enn fremur hefur Barnaverndarstofa eftirlit með störfum barnaverndarnefnda samkvæmt lögum þessum.
Barnaverndarstofa annast leyfisveitingar til fósturforeldra, tekur ákvarðanir og veitir barnaverndarnefndum liðsinni í fósturmálum skv. XII. kafla laga þessara.
Barnaverndarstofa fer með yfirstjórn heimila og stofnana sem ríkinu ber að sjá til að séu tiltæk skv. XIII. kafla laga þessara og skal hlutast til um að slík heimili og stofnanir verði sett á fót. Stofan hefur yfirumsjón með vistun barna á þessum heimilum og stofnunum. Barnaverndarstofa annast enn fremur leyfisveitingar skv. XIII. og XIV. kafla laga þessara.
Barnaverndarstofa getur rekið sérstakar þjónustumiðstöðvar í því skyni að treysta þverfaglegt samstarf, eflingu og samhæfingu stofnana við meðferð mála á sviði barnaverndar. Þá er Barnaverndarstofu heimilt að bjóða barnaverndarnefndum aðra sérhæfða þjónustu, svo sem úrræði utan stofnana á sviði meðferðar fyrir börn, enda sé markmið hennar að auðvelda nefndum að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Heimilt er að taka gjöld fyrir þau sérstöku verkefni sem Barnaverndarstofa sinnir samkvæmt ákvæði þessu eftir því sem nánar er kveðið á um í reglugerð. Gjaldið skal aldrei vera hærra en nemur kostnaði við rekstur þjónustumiðstöðvar eða þeirrar sértæku þjónustu sem um ræðir, þar með talinn kostnaður vegna launa og þjálfunar starfsfólks svo og önnur útgjöld sem sannanlega hljótast af þjónustunni.
Barnaverndarstofa fer jafnframt með önnur verkefni sem henni eru falin í lögum þessum eða öðrum lögum.
Barnaverndarstofa skal árlega gefa út skýrslu um starfsemi sína.
Félagsmálaráðherra skal kveða nánar á um starfsemi Barnaverndarstofu í reglugerð.
8. gr.
Eftirlit Barnaverndarstofu með barnaverndarnefndum.
Barnaverndarstofa getur auk þess krafið barnaverndarnefndir um allar þær upplýsingar og skýrslur sem hún telur nauðsynlegar, bæði gögn í einstökum málum og skýrslur sem barnaverndarnefndir þurfa að vinna sérstaklega.
Barnaverndarstofa getur, á grundvelli kvartana eða annarra upplýsinga sem henni berast um meðferð einstakra mála og ef hún telur ástæðu til, aflað nauðsynlegra gagna, upplýsinga og skýringa hjá viðkomandi barnaverndarnefnd.
Telji Barnaverndarstofa, eftir að hafa aflað upplýsinga og skýringa skv. 2. og 3. mgr., að barnaverndarnefnd fari ekki að lögum við rækslu starfa sinna skal hún eftir því sem tilefni er til leiðbeina barnaverndarnefnd um málsmeðferð og beina til hennar ábendingum um það sem betur má fara. Ef barnaverndarnefnd fer ekki að ábendingum og leiðbeiningum Barnaverndarstofu getur stofan áminnt nefndina um að rækja skyldur sínar. Barnaverndarstofa skal gera sveitarstjórn og félagsmálaráðuneyti aðvart um slíka áminningu. Gæta skal ákvæða um trúnaðarskyldu þegar áminning er tilkynnt til sveitarstjórnar.
9. gr.
Framkvæmdaáætlanir sveitarfélaga í barnaverndarmálum.
Ef sveitarfélög hafa með sér samvinnu um barnavernd, sbr. 10. gr., er þeim heimilt að gera sameiginlega áætlun.
III. KAFLI
Barnaverndarnefndir.
10. gr.
Barnaverndarnefndir, kosning o.fl.
Sveitarstjórn kýs barnaverndarnefnd, sbr. þó 3. og 4. mgr. Fámennari sveitarfélög skulu hafa samvinnu við önnur sveitarfélög um kosningu barnaverndarnefndar. Samanlagður íbúafjöldi sveitarfélaga að baki hverri barnaverndarnefnd skal ekki vera undir 1.500.
Heimilt er sveitarstjórn að fela héraðsnefnd eða stjórn byggðasamlags kosningu barnaverndarnefndar er nær yfir fleiri en eitt sveitarfélag eða semja um svæðisbundið samstarf með öðrum hætti en að framan greinir.
Heimilt er sveitarstjórn að fela félagsmálanefnd störf barnaverndarnefndar og í þeim tilvikum skal gæta þeirra reglna sem fram koma í 1. og 2. mgr. 11. gr. um kjör barnaverndarnefnda og um íbúafjölda, sbr. 2. mgr. þessarar greinar.
11. gr.
Skipan barnaverndarnefndar.
Um kjörgengi í barnaverndarnefnd fer eftir sömu reglum og um kjörgengi í sveitarstjórn samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna.
Sveitarstjórnir skulu tilkynna Barnaverndarstofu um skipan barnaverndarnefndar eigi síðar en tveimur mánuðum eftir að sveitarstjórnarkosningar fóru fram.
Hafi sveitarstjórn ekki skipað í barnaverndarnefnd samkvæmt lögum þessum að fjórum mánuðum liðnum frá sveitarstjórnarkosningum getur félagsmálaráðherra áminnt sveitarfélagið og veitt því einn mánuð til úrbóta. Verði sveitarstjórn ekki við tilmælunum innan þessa frests getur ráðherra ákveðið að tiltekin sveitarfélög skuli standa saman að barnaverndarnefnd og skipað nefnd sem fullnægir áðurgreindum skilyrðum. Getur ráðherra m.a. ákveðið að fella barnaverndarstarf í viðkomandi sveitarfélagi að öllu leyti undir barnaverndarnefnd í öðru sveitarfélagi sem þegar hefur kosið sér barnaverndarnefnd. Allur kostnaður sem hlýst af skipun slíkrar nefndar greiðist af viðkomandi sveitarfélögum eftir því sem nánar er ákveðið af ráðherra. Félagsmálaráðherra getur enn fremur veitt undanþágu frá 3. málsl. 2. mgr. 10. gr. ef samanlagður íbúafjöldi er nálægt því að vera 1.500 og landfræðilegar og aðrar aðstæður eru með þeim hætti að óhagkvæmt eða torvelt er að ná þeim íbúafjölda.
Starfandi barnaverndarnefnd heldur að fullu umboði sínu þar til ný nefnd hefur verið skipuð samkvæmt ákvæðum þessara laga.
12. gr.
Almennt um hlutverk barnaverndarnefnda.
a. Eftirlit. Barnaverndarnefndir skulu kanna aðbúnað, hátterni og uppeldisskilyrði barna og meta sem fyrst þarfir þeirra sem ætla má að búi við óviðunandi aðstæður, sæti illri meðferð eða eigi í alvarlegum félagslegum erfiðleikum.
b. Úrræði. Barnaverndarnefndir skulu beita þeim úrræðum samkvæmt lögum þessum til verndar börnum sem best eiga við hverju sinni og heppilegust þykja til að tryggja hagsmuni og velferð þeirra.
c. Önnur verkefni. Barnaverndarnefndir hafa með höndum önnur þau verkefni sem þeim eru falin í þessum lögum og öðrum lögum. Heimilt er sveitarstjórn að fela barnaverndarnefndum frekari verkefni sem varða aðstæður barna og ungmenna í umdæmi hennar.
Skylt er barnaverndarnefnd að aðstoða foreldra við að gegna forsjárskyldum sínum og grípa til viðeigandi úrræða samkvæmt ákvæðum þessara laga ef nauðsyn ber til.
13. gr.
Sjálfstæði barnaverndarnefnda.
Sveitarstjórn er óheimill aðgangur að gögnum og upplýsingum um einstök barnaverndarmál.
Ákvörðunum og úrskurðum barnaverndarnefnda verður ekki skotið til sveitarstjórnar.
14. gr.
Starfslið barnaverndarnefnda.
Heimilt er barnaverndarnefnd að semja við stofnanir, svo sem á sviði félags-, skóla- og heilbrigðisþjónustu, um sameiginlegt starfsmannahald og sérfræðiþjónustu.
Barnaverndarnefnd er heimilt að fela starfsmönnum sínum könnun og meðferð einstakra mála eða málaflokka samkvæmt reglum sem hún sjálf setur. Barnaverndarnefnd getur enn fremur í slíkum reglum framselt tilgreindum starfsmönnum vald til að taka einstakar ákvarðanir samkvæmt lögum þessum. Reglurnar skulu kynntar Barnaverndarstofu.
Óheimilt er að framselja til einstakra starfsmanna nefndanna vald til að kveða upp úrskurði samkvæmt lögum þessum og ákvarðanir um málshöfðun skv. 28. og 29. gr., svo og ákvörðun um að krefjast brottvikningar heimilismanns eða nálgunarbanns skv. 37. gr.
15. gr.
Valdsvið og samstarf barnaverndarnefnda.
Ef barn flyst úr umdæmi nefndar á meðan hún hefur mál þess til meðferðar skal barnaverndarnefnd í umdæminu sem barnið flytur í taka við meðferð þess. Barnaverndarnefnd sem hefur mál til meðferðar skal tilkynna um flutninginn til nefndar í viðkomandi umdæmi. Jafnframt ber að upplýsa viðtakandi barnaverndarnefnd um öll afskipti af málefnum barnsins og láta henni í té gögn þess.
Ef hentugra þykir að mál sé að einhverju eða öllu leyti rekið í öðru umdæmi en þar sem barn á fasta búsetu geta viðkomandi barnaverndarnefndir samið um það sín í milli. Ef ágreiningur rís á milli barnaverndarnefnda getur Barnaverndarstofa mælt svo fyrir að önnur nefnd en sú þar sem barn á fasta búsetu fari með mál ef það er talið tryggja betur meðferð þess. Skulu nefndirnar þá veita hvor annarri upplýsingar til skýringar málum og liðsinni við framkvæmd barnaverndarráðstafana.
Ef barnaverndarnefnd ráðstafar barni í fóstur eða vistun í annað umdæmi fer hún áfram með málið. Hún getur þó farið þess á leit að barnaverndarnefnd í því umdæmi beri tilteknar skyldur.
Ef barn á ekki lögheimili á Íslandi skal barnaverndarnefnd í umdæmi þar sem barn dvelst eða er statt fara með mál þess. Barnaverndarstofa sker úr ágreiningi um hvaða barnaverndarnefnd skuli fara með mál. Ríkissjóður endurgreiðir sveitarstjórn útlagðan kostnað sem af máli hlýst.
Ákvörðunum Barnaverndarstofu skv. 3. og 5. mgr. er heimilt að skjóta til kærunefndar barnaverndarmála.
IV. KAFLI
Tilkynningarskylda og aðrar skyldur við barnaverndaryfirvöld.
16. gr.
Tilkynningarskylda almennings.
Annars er hverjum manni rétt að gera barnaverndarnefnd viðvart um hvert það tilvik sem telja má að hún eigi að láta sig varða.
17. gr.
Tilkynningarskylda þeirra sem afskipti hafa af börnum.
Sérstaklega er leikskólastjórum, leikskólakennurum, dagmæðrum, skólastjórum, kennurum, prestum, læknum, tannlæknum, ljósmæðrum, hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum, félagsráðgjöfum, þroskaþjálfum og þeim sem hafa með höndum félagslega þjónustu eða ráðgjöf skylt að fylgjast með hegðun, uppeldi og aðbúnaði barna eftir því sem við verður komið og gera barnaverndarnefnd viðvart ef ætla má að aðstæður barns séu með þeim hætti sem lýst er í 1. mgr.
Tilkynningarskylda samkvæmt þessari grein gengur framar ákvæðum laga eða siðareglna um þagnarskyldu viðkomandi starfsstétta.
18. gr.
Tilkynningarskylda lögreglu og skýrslutaka af börnum.
Um skýrslutökur af börnum sem brotaþolum, sakborningum eða vitnum í opinberum málum, hvort heldur sem er á rannsóknarstigi eða við meðferð máls fyrir dómi, gilda ákvæði laga um meðferð opinberra mála og reglugerða sem settar hafa verið með stoð í þeim.
19. gr.
Nafnleynd tilkynnanda.
Ef tilkynnandi skv. 16. gr. óskar nafnleyndar gagnvart öðrum en nefndinni skal það virt nema sérstakar ástæður mæli gegn því. Ákvörðun barnaverndarnefndar um nafnleynd er heimilt að skjóta til kærunefndar barnaverndarmála. Leiðbeina skal tilkynnanda um rétt hans til að kæra ákvörðun barnaverndarnefndar.
Ákvæði 2. mgr. um rétt til nafnleyndar á ekki við um tilkynnendur skv. 17. og 18. gr.
20. gr.
Samstarf við barnaverndaryfirvöld.
Öllum sjúkrastofnunum, þar með töldum áfengismeðferðarstofnunum og geðdeildum, ber að taka tillit til hagsmuna barns þegar teknar eru ákvarðanir um meðferð og innlögn foreldra þess. Læknar, hjúkrunarfræðingar og aðrir starfsmenn á framangreindum stofnunum skulu hafa samráð við barnaverndarnefndir svo unnt verði að haga nauðsynlegum barnaverndarúrræðum í samræmi við ákvarðanir um meðferð og innlögn foreldris.
Skylt er lögreglu og fangelsismálayfirvöldum að hafa samstarf við barnaverndarnefndir og veita þeim eftir atvikum aðstoð við úrlausn barnaverndarmála.
Félagsmálaráðherra getur sett í reglugerð nánari reglur um samstarf barnaverndarnefnda við aðrar stofnanir í samráði við þau ráðuneyti sem viðkomandi stofnanir heyra undir.
V. KAFLI
Upphaf barnaverndarmáls.
21. gr.
Málsmeðferð vegna tilkynninga.
Barnaverndarnefnd getur með sömu skilyrðum hafið könnun máls vegna upplýsinga sem hún hefur fengið með öðrum hætti.
Ef barnaverndarnefnd fær tilkynningu eða vitneskju með öðrum hætti um að þunguð kona stofni heilsu eða lífi ófædds barns síns í hættu með óviðunandi eða háskalegu líferni sínu, t.d. með ofneyslu áfengis eða fíkniefnaneyslu, getur barnaverndarnefnd ákveðið að hefja könnun á málinu.
Ákvörðun barnaverndarnefndar um að hefja könnun máls eða láta mál niður falla er hvorki kæranleg til kærunefndar barnaverndarmála né annars stjórnvalds. Barnaverndarnefnd skal tilkynna foreldrum um að tilkynning hafi borist og um ákvörðun sína í tilefni af henni. Heimilt er að fresta tilkynningu til foreldra vegna ríkra rannsóknarhagsmuna.
Ákvörðun um að hefja könnun skal ekki tekin nema rökstuddur grunur sé um að tilefni sé til. Mál telst barnaverndarmál þegar barnaverndarnefnd hefur tekið formlega ákvörðun um að hefja könnun.
Nánari ákvæði um málsmeðferð vegna tilkynninga, svo sem um skráningu þeirra, eyðublöð o.fl., skulu sett í reglugerð sem félagsmálaráðherra setur að fengnum tillögum Barnaverndarstofu.
22. gr.
Markmið könnunar máls.
Um könnun máls, rannsóknarheimildir barnaverndarnefnda, um skyldu til að láta barnaverndarnefndum í té upplýsingar og málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd almennt gilda ákvæði VIII. kafla laga þessara.
VI. KAFLI
Ráðstafanir barnaverndarnefnda.
23. gr.
Áætlun um meðferð máls.
Ef könnun leiðir í ljós að þörf er á beitingu sérstakra úrræða samkvæmt lögum þessum skal barnaverndarnefnd, í samvinnu við foreldra og eftir atvikum barn sem náð hefur 15 ára aldri, gera skriflega áætlun um frekari meðferð máls. Hafa skal samráð við yngri börn eftir því sem aldur þeirra og þroski gefur tilefni til. Áætlun skal gera til ákveðins tíma og endurskoða eftir þörfum.
Barnaverndarnefnd skal meta þörf á samstarfi við aðra aðila við gerð og framkvæmd áætlunar og í samvinnu við foreldra leitast við að koma slíku samstarfi á.
Náist ekki samkomulag við foreldra eða barn, þegar það á við, skal barnaverndarnefnd einhliða semja áætlun um framvindu máls og beitingu úrræða samkvæmt ákvæðum laga þessara. Áætlunina skal kynna fyrir foreldrum og barni.
24. gr.
Úrræði með samþykki foreldra.
a. leiðbeina foreldrum um uppeldi og aðbúnað barns,
b. stuðla að því í samvinnu við hlutaðeigandi stofnanir að beitt verði úrræðum samkvæmt öðrum lögum,
c. útvega barni viðeigandi stuðning eða meðferð,
d. útvega barni eða fjölskyldu tilsjónarmann, persónulegan ráðgjafa eða stuðningsfjölskyldu,
e. aðstoða foreldra eða þungaða konu við að leita sér meðferðar vegna veikinda, áfengis- eða vímuefnaneyslu eða annarra persónulegra vandamála.
Barnaverndarnefnd getur enn fremur með samþykki foreldra og án sérstaks úrskurðar beitt öðrum þeim úrræðum sem kveðið er á um í 26. gr. laga þessara.
Fari foreldrar sem búa ekki saman sameiginlega með forsjá samkvæmt ákvæðum barnalaga nægir að það foreldranna sem barnið býr hjá samkvæmt ákvæðum forsjársamnings samþykki ráðstafanir samkvæmt þessari grein.
25. gr.
Úrræði utan heimilis með samþykki foreldra og barns.
a. tekið við forsjá eða umsjá barns og ráðstafað barni í fóstur,
b. tekið við forsjá eða umsjá barns og vistað barn utan heimilis á heimili eða stofnun eða leitað annarra úrræða skv. XIII. og XIV. kafla til umönnunar, rannsóknar, meðferðar eða stuðnings.
Fóstur eða vistun barns skv. 1. mgr. skal eigi standa lengur en þörf krefur. Ráðstafanir þessar skulu að jafnaði vera tímabundnar og sæta reglulegri endurskoðun eftir því sem nánar er kveðið á um í fóstur- eða vistunarsamningi. Með tilliti til hagsmuna barns getur fóstur eða vistun þó varað þar til barn verður lögráða.
Ef ráðstöfun skv. a- eða b-lið 1. mgr. er gegn vilja barns sem ekki hefur náð 15 ára aldri skal það fá tækifæri til að tala máli sínu fyrir nefndinni með liðsinni sérstaks talsmanns ef því er að skipta.
Fari foreldrar sem búa ekki saman sameiginlega með forsjá samkvæmt ákvæðum barnalaga þarf samþykki beggja foreldra til ráðstöfunar. Ef barn sem orðið er 15 ára samþykkir úrræði nægir samþykki þess foreldris sem barnið býr hjá en leita skal umsagnar hins foreldrisins.
26. gr.
Úrræði án samþykkis foreldra.
a. kveðið á um eftirlit með heimili,
b. gefið fyrirmæli um aðbúnað og umönnun barns, svo sem dagvistun þess, skólasókn, læknisþjónustu, rannsókn, meðferð eða þjálfun,
c. ákveðið að ekki megi fara með barnið úr landi.
Ráðstafanir skv. 1. mgr. skulu ávallt vera tímabundnar og eigi standa lengur en þörf krefur hverju sinni og skulu endurskoðaðar eigi sjaldnar en á sex mánaða fresti.
Úrskurðir eru kæranlegir til kærunefndar barnaverndarmála.
27. gr.
Úrskurður barnaverndarnefndar um vistun barns utan heimilis.
a. kveðið á um að barn skuli vera kyrrt á þeim stað þar sem það dvelst í allt að tvo mánuði,
b. kveðið á um töku barns af heimili í allt að tvo mánuði og um nauðsynlegar ráðstafanir, svo sem ráðstöfun þess í fóstur eða vistun á heimili eða stofnun eða leitað annarra úrræða skv. XIII. og XIV. kafla til að tryggja öryggi þess eða til að unnt sé að gera viðeigandi rannsókn á barninu og veita því nauðsynlega meðferð og aðhlynningu.
Foreldrum eða barni sem náð hefur 15 ára aldri er heimilt að bera úrskurð barnaverndarnefndar undir héraðsdómara. Krafa þess efnis skal berast dómara innan fjögurra vikna frá því að úrskurður var kveðinn upp. Málskot til dómstóla kemur ekki í veg fyrir að úrskurður barnaverndarnefndar komi til framkvæmda.
Um málsmeðferð fyrir dómi fer skv. XI. kafla.
28. gr.
Úrskurður dómstóls um vistun barns utan heimilis.
Ef krafist er framlengingar slíkrar vistunar eða krafist er forsjársviptingar skv. 29. gr. áður en vistunartíma lýkur helst ráðstöfun þar til úrskurður eða dómur liggur fyrir.
Um málsmeðferð fyrir dómi fer skv. XI. kafla.
29. gr.
Forsjársvipting.
a. að daglegri umönnun, uppeldi eða samskiptum foreldra og barns sé alvarlega ábótavant með hliðsjón af aldri þess og þroska,
b. að barni sem er sjúkt eða fatlað sé ekki tryggð viðeigandi meðferð, þjálfun eða kennsla,
c. að barninu sé misþyrmt, misboðið kynferðislega eða megi þola alvarlega andlega eða líkamlega áreitni eða niðurlægingu á heimilinu,
d. fullvíst að líkamlegri eða andlegri heilsu barns eða þroska þess sé hætta búin sökum þess að foreldrar eru augljóslega vanhæfir til að fara með forsjána, svo sem vegna vímuefnaneyslu, geðrænna truflana, greindarskorts eða að breytni foreldra sé líkleg til að valda barni alvarlegum skaða.
Kröfu um sviptingu forsjár skal því aðeins gera að ekki sé unnt að beita öðrum og vægari úrræðum til úrbóta eða slíkar aðgerðir hafi verið reyndar án viðunandi árangurs.
Um málsmeðferð fyrir dómi samkvæmt þessari grein fer eftir ákvæðum X. kafla.
30. gr.
Úrræði barnaverndarnefndar vegna þungaðra kvenna.
Ef barnaverndarnefnd telur að úrræði skv. 1. mgr. komi ekki að gagni getur nefndin sett fram kröfu um sviptingu sjálfræðis samkvæmt ákvæðum lögræðislaga í því skyni að koma konunni til aðhlynningar og meðferðar á viðeigandi stofnun. Um málsmeðferð gilda ákvæði lögræðislaga.
31. gr.
Neyðarráðstafanir.
Barnaverndarnefnd skal án tafar taka málið til meðferðar og kveða upp úrskurð innan 14 daga, að öðrum kosti fellur ákvörðun skv. 1. mgr. úr gildi. Um málsmeðferð samkvæmt þessari málsgrein gilda ákvæði VIII. kafla.
Við aðstæður þær sem 1. mgr. tekur til er heimilt þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 43. gr. að fara inn á heimili, enda sé ástæða til að ætla að barn sé í bráðri hættu.
32. gr.
Skipan lögráðamanns.
Barnaverndarnefnd tekur forsjá barns í sínar hendur ef það verður forsjárlaust af öðrum ástæðum og hlutast á sama hátt til um að því verði skipaður lögráðamaður, sbr. 1. mgr.
33. gr.
Umsjá barns sem vistast utan heimilis.
Leitast skal við að finna systkinum sameiginlegar lausnir í samræmi við þarfir þeirra og hagsmuni.
Foreldrar sem hafa verið sviptir forsjá barns eiga ekki aðild að málum sem varða ákvarðanir um úrræði því til handa, að undanskildum málum er varða ákvörðun um umgengnisrétt.
34. gr.
Endurskoðun ráðstafana.
Hafi foreldri eða barn sem náð hefur 15 ára aldri veitt samþykki fyrir úrræði skv. 25. gr. sem ætlað er að standa þar til barn verður lögráða eða hafi foreldri verið svipt forsjá skv. 29. gr. getur foreldri eða barn sem náð hefur 15 ára aldri gert kröfu á hendur barnaverndarnefnd og fósturforeldrum, ef það á við, fyrir dómi um að samningi verði hnekkt eða dómi um sviptingu breytt og að foreldri verði falin forsjá eða umsjá barns að nýju.
Krafa skv. 2. mgr. verður því aðeins tekin til greina að breyting þyki réttmæt vegna breyttra aðstæðna, raski ekki stöðugleika í uppeldi barns og taki mið af hag og þörfum þess. Ef foreldri hefur verið svipt forsjá er einungis unnt að gera kröfu ef liðnir eru tólf mánuðir hið skemmsta frá því að dómstóll leysti síðast úr máli með endanlegum dómi.
Ráðstöfun helst þar til dómur hefur fallið.
Um málsmeðferð fyrir dómi samkvæmt þessari grein fer samkvæmt ákvæðum X. kafla.
VII. KAFLI
Aðrar ráðstafanir barnaverndarnefnda.
35. gr.
Úrræði gagnvart þeim sem vinna með börnum.
36. gr.
Upplýsingar úr sakaskrá.
Óheimilt er að ráða til starfa hjá barnaverndaryfirvöldum eða heimilum og stofnunum samkvæmt lögum þessum, hvort sem þau eru rekin af einkaaðilum, ríki eða sveitarfélögum, menn sem hlotið hafa refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, sbr. 1. mgr.
Yfirmenn skóla, leikskóla, sumardvalarheimila, íþrótta- og tómstundamiðstöðva og annarra slíkra stofnana eða staða þar sem börn koma saman eða dveljast um lengri eða skemmri tíma, eiga rétt til upplýsinga úr sakaskrá um það hvort tiltekinn maður, sem sótt hefur um störf á þeirra vegum, hefur hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, sbr. 1. mgr., að fengnu samþykki hans.
37. gr.
Brottvikning heimilismanns og nálgunarbann.
VIII. KAFLI
Málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd.
38. gr.
Gildissvið stjórnsýslulaga.
Ráðherra setur nánari ákvæði í reglugerð um meðferð mála hjá barnaverndarnefnd, svo sem um tilkynningar, gerð áætlana og um stuðningsúrræði, að fengnum tillögum Barnaverndarstofu.
39. gr.
Skráning mála.
40. gr.
Leiðbeiningarskylda.
41. gr.
Rannsóknarregla, málshraði o.fl.
Könnun barnaverndarmáls skal ekki vera umfangsmeiri en nauðsyn krefur og henni skal hraðað svo sem kostur er. Ákvörðun um beitingu viðeigandi úrræða skal að jafnaði liggja fyrir innan þriggja mánaða og eigi síðar en fjórum mánuðum eftir að ákvörðun var tekin um að hefja könnun.
42. gr.
Skráning upplýsinga.
43. gr.
Rannsóknarheimildir.
Foreldrum eða þeim sem barnið dvelst hjá er skylt að veita liðsinni sitt til þess að könnun máls geti gengið greiðlega, enda skal barnaverndarnefnd sýna þeim er málið varðar ýtrustu nærgætni.
Við könnun á högum barns er barnaverndarnefnd heimilt að taka skýrslur af foreldrum eða forsjáraðilum barns og öðrum þeim er um kunna að bera.
Barnaverndarnefnd eða starfsmönnum hennar er því aðeins heimilt að fara inn á heimili barns, til könnunar á högum þess, að fyrir liggi samþykki foreldris eða forráðamanns eða á grundvelli dómsúrskurðar.
Barnaverndarnefnd eða starfsmönnum hennar er heimilt að fara á annan stað en heimili barns, svo sem í dagvistun, leikskóla, skóla, félagsmiðstöð eða neyðarathvarf, til að tala við barn, í einrúmi ef þörf er á, fylgjast með hegðun þess eða til athugunar á barni. Jafnan skal hafa samráð við foreldra ef tala á við barn yngra en 12 ára eða gera athuganir á því. Ef rannsóknarhagsmunir mæla sannanlega með því er heimilt að tala við barn yngra en 12 ára og fylgjast með hegðun þess án vitneskju eða samþykkis foreldra eða forráðamanna, en tilkynna skal þeim svo fljótt sem verða má að slík könnun hafi farið fram.
44. gr.
Upplýsingaskylda gagnvart barnaverndarnefnd.
Með sama hætti er öllum stofnunum og öðrum aðilum þar sem barn hefur dvalist eða kemur reglulega, svo sem skólum, dagvistarheimilum og félagsmiðstöðvum fyrir börn og unglinga, skylt að láta nefndinni í té upplýsingar sem hún telur að skipt geti máli fyrir úrlausn málsins.
Þá skulu lögregla og sakaskrá ríkisins með sama hætti láta nefndinni í té upplýsingar sem þessar stofnanir búa yfir um barn og foreldra þess og varðað geta málið.
Upplýsingar samkvæmt þessari grein skal veita svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en 14 dögum eftir að beiðni barst.
Upplýsingaskylda samkvæmt þessari grein gengur framar ákvæðum laga eða siðareglna um þagnarskyldu einstakra starfsstétta.
45. gr.
Upplýsingaréttur og aðgangur að gögnum máls.
Barnaverndarnefnd getur með rökstuddum úrskurði takmarkað aðgang aðila að tilteknum gögnum ef hún telur að það geti skaðað hagsmuni barns og samband þess við foreldra eða aðra. Nefndin getur einnig úrskurðað að aðilar og lögmenn þeirra geti kynnt sér skjöl og önnur gögn án þess að þau eða ljósrit af þeim séu afhent.
46. gr.
Réttindi barns við málsmeðferð.
Gefa skal barni kost á að tjá sig um mál sem það varðar í samræmi við aldur þess og þroska og taka skal réttmætt tillit til skoðana þess við úrlausn málsins. Ávallt skal gefa barni sem náð hefur 12 ára aldri kost á að tjá sig um mál.
Þegar barnaverndarnefnd hefur tekið ákvörðun um að hefja könnun máls skal hún þegar taka afstöðu til þess hvort þörf sé á að skipa barni talsmann. Jafnan skal skipa barni talsmann áður en gripið er til ráðstafana skv. 25., 27. eða 28. gr. og áður en sett er fram krafa um sviptingu forsjár skv. 29. gr. nema barn njóti aðstoðar lögmanns, sbr. 2. mgr. 47. gr. Ráðherra skal kveða nánar á um hæfi og hlutverk talsmanna í barnaverndarmálum í reglugerð að fengnum tillögum Barnaverndarstofu.
47. gr.
Andmælaregla.
Barnaverndarnefnd skal veita foreldrum og barni sem er aðili máls fjárstyrk til að greiða fyrir lögmannsaðstoð skv. 1. mgr. og í tengslum við rekstur máls fyrir kærunefnd barnaverndarmála eftir reglum sem nefndin setur. Í reglunum skal taka tillit til efnahags foreldra, eðlis og umfangs málsins.
48. gr.
Samþykki foreldra og barns.
49. gr.
Ályktunarhæfi og form úrskurða.
Fjórir nefndarmenn hið fæsta skulu standa að úrskurði. Úrskurður skal vera skriflegur og rökstuddur. Þar skal rekja málavexti og greina forsendur og niðurstöður. Úrskurð skal tilkynna með ábyrgðarbréfi eða á annan jafntryggilegan hátt og skal vekja athygli aðila á rétti hans til að kæra úrskurð barnaverndarnefndar til kærunefndar barnaverndarmála eða til að bera ákvarðanir nefndarinnar undir dóm þegar það á við og um málskotsfresti.
50. gr.
Fullnusta ákvarðana.
Ef aðilar neita að hlýðnast lögmætum ákvörðunum barnaverndarnefndar, kærunefndar barnaverndarmála og dómstóla skal lögregla veita atbeina sinn við fullnustu ákvörðunar.
Fulltrúi barnaverndarnefndar skal þó ávallt vera viðstaddur ef grípa þarf til ráðstafana skv. 2. mgr.
Barnaverndarstofa getur mælt svo fyrir að ákvörðun barnaverndaryfirvalda í öðru ríki skuli framfylgt hér á landi.
IX. KAFLI
Málsmeðferð fyrir kærunefnd barnaverndarmála.
51. gr.
Málskot.
Kærunefnd barnaverndarmála getur metið að nýju bæði lagahlið máls og sönnunargögn. Nefndin getur ýmist staðfest úrskurðinn að niðurstöðu til eða hrundið honum að nokkru eða öllu leyti. Þá getur kærunefndin einnig vísað málinu til barnaverndarnefndar til meðferðar að nýju.
52. gr.
Málsmeðferð fyrir kærunefnd.
Barnaverndarnefnd er aðili máls fyrir kærunefnd. Skal málflutningur að jafnaði vera skriflegur en kærunefnd getur kvatt aðila til munnlegrar skýrslugjafar og ákveðið munnlegan málflutning fyrir nefndinni.
Kærunefnd skal að jafnaði byggja úrskurð sinn á þeim gögnum sem fyrir eru í málinu. Nefndin getur þó, ef hún telur ríka ástæðu til, lagt fyrir aðila að afla nánar tilgreindra gagna, svo sem álitsgerða sérfræðinga. Kærunefnd á rétt til skriflegra upplýsinga úr sakaskrá um aðila máls. Kærunefnd kveður á um það hver skuli bera kostnað vegna öflunar gagna, þar með talinna álitsgerða sérfræðinga.
Málskot til kærunefndar barnaverndarmála frestar ekki framkvæmd úrskurðar barnaverndarnefndar. Þegar sérstaklega stendur á getur kærunefndin þó ákveðið, að kröfu aðila, að framkvæmd úrskurðar skuli frestað þar til nefndin hefur kveðið upp úrskurð sinn.
X. KAFLI
Meðferð mála fyrir dómi skv. 29. gr. og 2. mgr. 34. gr.
53. gr.
Gildissvið laga um meðferð einkamála.
54. gr.
Um sérfróða meðdómsmenn, þinghöld og málshraða.
Þinghöld skulu háð fyrir luktum dyrum.
Hraða ber meðferð máls svo sem kostur er.
55. gr.
Aðild barns.
Þegar barni hefur verið skipaður talsmaður skal gefa honum kost á að vera viðstaddur þinghöld í máli ef vörnum er haldið uppi.
Ávallt skal gefa barni kost á að tjá sig um mál sem það varðar þótt það gerist ekki aðili þess skv. 1. mgr.
56. gr.
Sönnun og sönnunargögn.
Dómari getur lagt fyrir barnaverndarnefnd að afla nánar tilgreindra gagna, svo sem matsgerðar um foreldra eða barn. Jafnframt getur dómari lagt fyrir foreldra eða fósturforeldra að afla nánar tilgreindra gagna. Heimilt er dómara að ákveða að kostnaður vegna gagnaöflunar skv. 2. málsl. greiðist úr ríkissjóði.
57. gr.
Málsástæður.
58. gr.
Um nafnleynd o.fl.
Áður en endurrit úr þingbókum og dómabókum eru afhent skal afmá nöfn málsaðila og aðrar upplýsingar sem bent geta til þess hverjir aðilar séu eða hvaða barn mál varði, svo og önnur atriði sem eðlilegt er að leynt fari með tilliti til almanna- eða einkahagsmuna.
59. gr.
Áhrif málskots.
60. gr.
Gjafsókn.
Ef mál er höfðað skv. 34. gr. til endurskoðunar á fyrri niðurstöðu dóms, sbr. 3. mgr. 34. gr., fer um rétt aðila til gjafsóknar samkvæmt almennum reglum.
XI. KAFLI
Meðferð mála fyrir dómi skv. 27. og 28. gr.
61. gr.
Gildissvið laga um meðferð einkamála o.fl.
62. gr.
Aðild og kröfugerð.
Sá sem ber mál undir dóm samkvæmt ákvæðum þessa kafla skal beina því til héraðsdómara í umdæmi þeirrar barnaverndarnefndar sem fer með mál. Skal gera það skriflega og greina svo glöggt sem verða má:
a. nafn barns og foreldra, kennitölu,
b. lögheimili og dvalarstað,
c. hvaða kröfur séu gerðar,
d. lýsingu málsatvika og rökstuðning fyrir kröfum.
63. gr.
Þinghöld, sönnunargögn o.fl.
Þegar mál er fyrst tekið fyrir á dómþingi skal barnaverndarnefnd leggja fram staðfest afrit allra gagna sem ákvörðun er byggð á, þar með talið úrskurði og endurrit úr fundargerðabók nefndarinnar. Varnaraðila skal síðan veita stuttan frest til að leggja fram greinargerð og afla sönnunargagna. Heimilt er dómara að veita frekari fresti til gagnaöflunar en taka skal mál aftur fyrir svo fljótt sem unnt er.
Ef útivist verður af hálfu sóknaraðila skal mál fellt niður. Ef varnaraðili sækir ekki þing skal mál tekið til úrskurðar. Hafi varnaraðili lagt fram greinargerð áður en þingsókn féll niður skal sóknaraðila gefinn kostur á að leggja fram stutt skriflegt svar við röksemdum varnaraðila áður en málið verður tekið til úrskurðar.
Matsgerðar verður ekki aflað í málum samkvæmt þessum kafla.
Þegar öflun gagna er lokið í máli þar sem vörnum er haldið uppi skal það sótt og varið munnlega.
Dómari skal svo fljótt sem unnt er kveða upp úrskurð í máli og eigi síðar en innan viku frá því það var tekið til úrskurðar.
64. gr.
Málskot.
Kæra frestar ekki framkvæmd úrskurðar nema héraðsdómari hafi mælt svo fyrir.
XII. KAFLI
Um ráðstöfun barna í fóstur.
65. gr.
Fóstur.
a. foreldrar sem fara með forsjá barns afsala sér forsjá til barnaverndarnefndar eða samþykkja fóstur,
b. barn er forsjárlaust, svo sem vegna andláts foreldris, ekki næst til foreldris eða af öðrum sambærilegum ástæðum,
c. foreldrar hafa verið sviptir forsjá skv. 29. gr.
Fóstur getur verið tvenns konar, varanlegt eða tímabundið. Með varanlegu fóstri er átt við að það haldist þar til forsjárskyldur falla niður samkvæmt lögum. Fara fósturforeldrar þá að jafnaði með forsjárskyldur nema annað þyki betur henta þörfum barns og hagsmunum að mati barnaverndarnefndar. Að jafnaði skal ekki gerður samningur um varanlegt fóstur fyrr en að liðnum reynslutíma sem skal ekki vera lengri en eitt ár.
Markmið fósturs skv. 1. mgr. er að tryggja barni uppeldi og umönnun innan fjölskyldu svo sem best hentar þörfum þess. Barni skal tryggður góður aðbúnaður hjá fósturforeldrum og þeir skulu sýna fósturbarni umhyggju og nærfærni og leitast við að efla andlegan og líkamlegan þroska þess. Nánar skal kveðið á um réttindi og skyldur fósturforeldris í fóstursamningi.
Ef barn, sem ráðstafað er í fóstur, á við að stríða verulega hegðunarerfiðleika vegna geðrænna, tilfinningalegra og annarra vandamála af því tagi er enn fremur heimilt að mæla fyrir um sérstaka umönnun og þjálfun á fósturheimili í stað þess að vista það á stofnun.
66. gr.
Leyfisveiting.
Barnaverndarstofa veitir leyfi til að taka börn í fóstur. Barnaverndarstofa veitir væntanlegum fósturforeldrum fræðslu, leiðbeiningar og annan faglegan stuðning.
Félagsmálaráðherra setur reglugerð, að fengnum tillögum Barnaverndarstofu, um hæfi fólks til að taka börn í fóstur.
67. gr.
Val á fósturforeldrum.
Barnaverndarnefnd sem ráðstafar barni í fóstur sendir beiðni um fósturheimili til Barnaverndarstofu og velur fósturforeldra úr hópi þeirra sem eru á skrá skv. 1. mgr. í samráði við stofuna. Barnaverndarnefnd ber að velja fósturforeldra af kostgæfni og með tilliti til þarfa og hagsmuna barnsins sem í hlut á. Telji barnaverndarnefnd það falla best að hagsmunum barns að ráðstafa því í fóstur til ættingja fer um það skv. 66. gr. Við val á fósturforeldrum skal miða að því að tryggja stöðugleika í lífi barns og að röskun á högum þess verði sem minnst. Ávallt skal leitast við að finna systkinum sameiginlegt fósturheimili nema sérstakar ástæður hamli.
Telji barnaverndarnefnd enn fremur þörf á að barn fái sérstaka umönnun og þjálfun skv. 4. mgr. 65. gr. skal kveðið á um það í fóstursamningi. Ef gert er ráð fyrir hlutdeild ríkisins í kostnaði vegna slíkrar viðbótarþjónustu, sbr. 88. gr., eru ákvæði í fóstursamningi sem að þessu lúta háð samþykki Barnaverndarstofu. Barnaverndarstofa velur enn fremur fósturforeldra við þessar aðstæður í samvinnu við barnaverndarnefnd.
68. gr.
Fóstursamningur.
a. lögheimili barns og daglega umsjá,
b. forsjárskyldur, þar með talin lögráð,
c. áætlaðan fósturtíma, sbr. 2. mgr. 65. gr.,
d. framfærslu barns og annan kostnað,
e. umgengni barns við kynforeldra eða aðra nákomna,
f. stuðning barnaverndarnefndar við barn og fósturforeldra meðan fóstur varir,
g. slit samnings vegna breyttra forsendna,
h. sérstaka umönnun og þjálfun, sbr. 4. mgr. 65. gr., þegar það á við,
i. annað sem málið kann að varða.
69. gr.
Umsjá og forsjárskyldur fósturforeldra.
Ef foreldrar samþykkja, afsala sér forsjá eða hafa verið sviptir forsjánni er heimilt að ákveða í fóstursamningi að fóstur skuli vara þar til barn verður lögráða.
70. gr.
Réttindi barns í fóstri.
Barnaverndarnefnd sem ráðstafar barni í fóstur skal veita barni nauðsynlegan stuðning á meðan fóstur varir.
Barni skal tryggð vitneskja um hvers vegna því var komið í fóstur og hvaða áform barnaverndarnefnd hefur um framtíð þess, allt eftir því sem aldur og þroski barns gefur tilefni til.
71. gr.
Réttarstaða foreldris sem ekki fer með forsjá barns.
Barnaverndarnefnd er heimilt, ef hún telur hagsmuni barnsins tryggða með þeim hætti, að afsala forsjá þess til hins kynforeldrisins. Barnaverndarnefnd metur hæfi þess foreldris og gerir skriflegan samning um breytta forsjá. Eftir að gerður er samningur um breytingu á forsjá samkvæmt þessari málsgrein fer um réttarstöðu foreldra og barns samkvæmt ákvæðum barnalaga.
Áður en barni er ráðstafað í fóstur skal barnaverndarnefnd ávallt leita umsagnar kynforeldris sem ekki fer með forsjá barns.
72. gr.
Undirbúningur barns og fósturforeldra fyrir fóstur.
73. gr.
Tilkynningar um gerð fóstursamnings.
Barnaverndarstofa heldur skrá yfir börn í fóstri.
74. gr.
Umgengni í fóstri.
Kynforeldrar eiga rétt til umgengni við barn í fóstri nema umgengni sé bersýnilega andstæð hagsmunum og þörfum barnsins og ósamrýmanleg þeim markmiðum sem stefnt er að með ráðstöfun þess í fóstur. Við mat á þessu skal m.a. taka tillit til þess hversu lengi fóstri er ætlað að vara. Þeir sem telja sig nákomna barninu eiga með sama hætti rétt til umgengni við barnið, enda verði talið að það sé til hagsbóta fyrir barnið. Barn sem er 15 ára og eldra getur sjálft gert kröfu um umgengni.
Við ráðstöfun barns í fóstur skal taka afstöðu til umgengni barns við kynforeldra og aðra nákomna og skal tekið mið af því hvað þjónar hagsmunum barnsins best. Náist samkomulag gerir barnaverndarnefnd skriflegan samning við þá sem umgengni eiga að rækja. Kanna skal viðhorf fósturforeldra áður en gengið er frá samningi.
Barnaverndarnefnd hefur úrskurðarvald um ágreiningsefni er varða umgengni barns við kynforeldra og aðra nákomna, hvort sem það varðar rétt til umgengni, umfang umgengnisréttarins eða framkvæmd. Ef sérstök atvik valda því, að mati barnaverndarnefndar, að umgengni barns við foreldra sé andstæð hag þess og þörfum getur nefndin úrskurðað að kynforeldri skuli ekki njóta umgengnisréttar. Barnaverndarnefnd getur á sama hátt ákveðið að aðrir sem telja sig nákomna barninu njóti ekki umgengnisréttar ef hún telur að skilyrðum 2. mgr. sé ekki fullnægt.
Þeir sem umgengni eiga að rækja geta óskað breytinga á ákvæðum samnings um umgengnisrétt. Náist ekki samkomulag um slíka breytingu tekur barnaverndarnefnd ákvörðun með úrskurði.
Þeir sem umgengni eiga að rækja geta krafist þess að barnaverndarnefnd endurskoði fyrri úrskurð sinn um umgengnisrétt. Barnaverndarnefnd er ekki skylt að taka slíka kröfu til efnisúrlausnar nema liðnir séu tólf mánuðir hið skemmsta frá því úrskurður barnaverndarnefndar eða kærunefndar barnaverndarmála var kveðinn upp.
Barnaverndarnefnd getur kveðið upp úrskurð um að halda dvalarstað barns leyndum, m.a. gagnvart kynforeldrum, ef hagsmunir barnsins krefjast þess.
Úrskurðir samkvæmt þessari grein eru kæranlegir til kærunefndar barnaverndarmála.
75. gr.
Framfærsla og annar kostnaður vegna barns í fóstri.
76. gr.
Eftirlit með fóstri.
77. gr.
Endurskoðun fóstursamnings.
Tilkynningar skv. 16., 17. og 18. gr. sem varða aðstæður barns hjá fósturforeldri, svo og upplýsingar um að fósturforeldri vanræki hlutverk sitt, skulu berast til barnaverndarnefndar sem ráðstafaði barni í fóstur. Er nefndinni skylt að kanna málið tafarlaust og grípa til viðeigandi ráðstafana.
Ef ekki næst samkomulag við fósturforeldra um breytingu á fóstursamningi getur barnaverndarnefnd með rökstuddum úrskurði breytt fóstursamningi eða fellt hann úr gildi. Úrskurður er kæranlegur til kærunefndar barnaverndarmála.
78. gr.
Reglugerð.
XIII. KAFLI
Heimili og stofnanir á ábyrgð ríkisins.
79. gr.
Heimili og stofnanir sem ríkið skal sjá um að séu tiltæk.
a. veita börnum móttöku í bráðatilvikum til að tryggja öryggi þeirra vegna meintra afbrota eða alvarlegra hegðunarerfiðleika,
b. greina vanda barna sem talin eru þurfa sérhæfða meðferð,
c. veita börnum sérhæfða meðferð vegna alvarlegra hegðunarerfiðleika, vímuefnaneyslu og meintra afbrota.
Barnaverndarstofa, í umboði félagsmálaráðuneytisins, annast uppbyggingu og rekstur heimila og stofnana skv. 1. mgr. Stofan getur falið öðrum rekstur þeirra á grundvelli þjónustusamnings. Heimili og stofnanir skv. 1. mgr. lúta yfirstjórn Barnaverndarstofu. Stofan skal hafa faglegt og fjárhagslegt eftirlit með starfsemi heimila og stofnana og hún getur mælt fyrir um tiltekna sérhæfingu þeirra. Barnaverndarstofa veitir þeim sem reka heimili og stofnanir fræðslu, leiðbeiningar og almennan faglegan stuðning.
Komi til ágreinings milli Barnaverndarstofu og rekstraraðila heimila skv. 1. mgr. má skjóta þeim ágreiningi til félagsmálaráðuneytis. Sama á við ef ágreiningur rís um framkvæmd þjónustu milli einstaklings sem nýtur þjónustu á heimili skv. 1. mgr. eða forráðamanns hans annars vegar og Barnaverndarstofu hins vegar.
Um stofnun og almennan rekstur heimila og stofnana fer að öðru leyti eftir reglugerð sem félagsmálaráðherra setur.
80. gr.
Framkvæmd vistunar barns á heimili eða stofnun skv. 79. gr.
Barnaverndarnefnd skal senda beiðni um vistun barns til Barnaverndarstofu sem metur og tekur ákvörðun í samráði við nefndina um vistun, þar á meðal hvaða heimili hentar barni best, hvenær vistun skuli hefjast og hvenær henni skuli ljúka. Í sérstökum tilvikum getur barnaverndarnefnd snúið sér beint til heimilis eða stofnunar um vistun barns eftir nánari reglum sem ráðherra setur að fengnum tillögum Barnaverndarstofu.
Barnaverndarnefnd ber að undirbúa barn undir viðskilnað frá foreldrum sínum og væntanlega vistun. Barnaverndarnefnd sem vistar barn skal veita barni og foreldrum nauðsynlegan stuðning meðan á vistun stendur. Hún skal fylgjast með líðan barnsins og því að ráðstöfun nái tilgangi sínum, m.a. með reglubundnum heimsóknum á heimili. Gera skal skriflegan samning um vistun hvers barns.
Ef foreldrar hafa afsalað sér eða verið sviptir forsjá barns sem vistað er á heimili eða stofnun skv. 79. gr. ber barnaverndarnefnd að finna barni stuðningsfjölskyldu ef vistun er ætlað að vara lengur en tvo mánuði.
Ráðherra setur reglugerð að fengnum tillögum Barnaverndarstofu um faglega starfsemi heimila skv. 79. gr. þar sem m.a. skal kveðið á um skilyrði fyrir rekstri heimilis, vistunartíma, skilyrði fyrir vistun, ákvörðun um val á úrræði, samninga um vistun barns, skyldur barnaverndarnefnda og eftirlit með heimili.
81. gr.
Réttur barns til umgengni.
Kynforeldrar eiga rétt til umgengni við barnið nema umgengni sé bersýnilega andstæð hagsmunum og þörfum barnsins og ósamrýmanleg þeim markmiðum sem stefnt er að með vistun. Þeir sem telja sig nákomna barninu skulu með sama hætti eiga rétt á umgengni við barn, enda verði talið að það sé til hagsbóta fyrir barnið. Barn sem er 15 ára og eldra getur sjálft gert kröfu um umgengni.
Við gerð vistunarsamnings skal barnaverndarnefnd leitast við að ná samkomulagi við þá sem umgengni eiga að rækja að teknu tilliti til þeirra reglna sem gilda á viðkomandi heimili eða stofnun.
Barnaverndarnefnd á úrskurðarvald um ágreiningsefni er varða umgengni kynforeldra og annarra nákominna við barn, hvort sem það varðar rétt til umgengni, umfang umgengnisréttarins eða framkvæmd. Ef sérstök atvik valda því, að mati barnaverndarnefndar, að umgengni barns við foreldra sé andstæð hag þess og þörfum getur nefndin úrskurðað að kynforeldri skuli ekki njóta umgengnisréttar. Barnaverndarnefnd getur á sama hátt ákveðið að aðrir sem telja sig nákomna barninu njóti ekki umgengnisréttar ef hún telur skilyrðum 2. mgr. ekki fullnægt.
Þeir sem umgengni eiga að rækja geta óskað breytinga á ákvæðum samnings um umgengnisrétt. Náist ekki samkomulag um slíka breytingu tekur barnaverndarnefnd ákvörðun með úrskurði.
Þeir sem umgengni eiga að rækja geta krafist þess að barnaverndarnefnd endurskoði fyrri úrskurð sinn um umgengnisrétt. Barnaverndarnefnd er ekki skylt að taka slíka kröfu til efnisúrlausnar nema liðnir séu tólf mánuðir hið skemmsta frá því úrskurður barnaverndarnefndar eða kærunefndar barnaverndarmála var kveðinn upp.
Barnaverndarnefnd skal leita umsagnar heimilis eða stofnunar þar sem barn er vistað áður en kveðinn er upp úrskurður um umgengni.
Barnaverndarnefnd getur kveðið upp úrskurð um að halda dvalarstað barns leyndum, m.a. gagnvart kynforeldrum, ef hagsmunir barnsins krefjast þess.
Úrskurðir samkvæmt þessari grein eru kæranlegir til kærunefndar barnaverndarmála.
82. gr.
Réttindi barns og beiting þvingunar.
Barn skal vera frjálst ferða sinna innan sem utan umráðasvæðis heimilis eða stofnunar, með þeim takmörkunum sem nauðsynlegt kann að vera að setja með tilliti til öryggis og velferðar barnsins og annarra. Barni sem er vistað á heimili skv. 79. gr. má banna að yfirgefa umráðasvæði heimilis eða stofnunar að því marki sem eðlilegt og nauðsynlegt er til að markmiðin með vistun náist.
Óheimilt er að:
a. beita barn líkamlegum eða andlegum refsingum,
b. beita innilokun, einangrun og öðrum slíkum þvingunarráðstöfunum eða agaviðurlögum nema nauðsyn beri til og þá samkvæmt reglugerð sem ráðherra setur að fengnum tillögum Barnaverndarstofu,
c. hafa eftirlit með póstsendingum, tölvusamskiptum og símtölum barns nema sérstakar ástæður komi til og þá samkvæmt reglugerð sem ráðherra setur að fengnum tillögum Barnaverndarstofu.
Ráðherra setur reglugerð að fengnum tillögum Barnaverndarstofu:
a. um framkvæmd ákvæða 3. mgr., þar með talið um þvingunarráðstafanir og málsmeðferð vegna beitingar þeirra,
b. sem miðar að því að koma í veg fyrir að áfengi, fíkniefni og önnur hættuleg efni eða hættulegir munir berist inn á heimili,
c. um meðferð á persónulegum fjármunum og eigum barns.
Heimilt er að fela einkaaðilum sem reka stofnun eða heimili á grundvelli þjónustusamnings að taka ákvarðanir um takmörkun réttinda og beitingu þvingunarráðstafana samkvæmt þessari grein.
Í reglugerð sem ráðherra setur samkvæmt þessari grein, að fengnum tillögum Barnaverndarstofu, skal enn fremur mæla fyrir um rétt barns og foreldra þess til að skjóta ákvörðunum um takmarkanir á réttindum og þvingunarráðstafanir til kærunefndar barnaverndarmála.
83. gr.
Leyfi til að reka stofnanir og heimili fyrir börn.
Þeir sem óska eftir að setja á stofn heimili eða stofnun skv. 1. mgr. skulu sækja um leyfi Barnaverndarstofu, enda falli heimili eða stofnun ekki undir önnur lög. Leita skal umsagnar barnaverndarnefndar þar sem heimili eða stofnun er áður en leyfi er veitt.
Ráðherra setur með reglugerð nánari reglur um rekstur heimila samkvæmt þessari grein, m.a. um skilyrði fyrir leyfisveitingu, réttindi barna og eftirlit, að fengnum tillögum Barnaverndarstofu.
Ef Barnaverndarstofa telur að meðferð barns á heimili eða stofnun sem fengið hefur leyfi skv. 1. mgr. sé ábótavant skal stofan leitast við með leiðbeiningum og áminningum að bæta úr því sem áfátt er og veita tiltekinn frest til þess. Barnaverndarstofa getur svipt aðila leyfi til áframhaldandi reksturs ef frestur sem stofan hefur veitt til úrbóta líður án þess að bætt sé úr því sem áfátt er eða ef brot á skilyrðum fyrir leyfi eru mjög alvarleg.
XIV. KAFLI
Heimili og önnur úrræði á ábyrgð sveitarfélaga.
84. gr.
Heimili og önnur úrræði sem barnaverndarnefndir skulu hafa tiltæk.
a. veita börnum móttöku, þar með talið í bráðatilvikum, til að tryggja öryggi þeirra, greina vanda eða til könnunar á aðstæðum þeirra, svo sem vegna vanrækslu, vanhæfni eða framferðis foreldra,
b. veita börnum móttöku vegna ófullnægjandi heimilisaðstæðna eða sérstakra þarfa barna, svo sem í kjölfar meðferðar.
Barnaverndarnefnd getur falið öðrum aðilum rekstur heimila skv. 1. mgr. á grundvelli þjónustusamnings.
Barnaverndarstofa skal hafa yfirlit yfir þörf á heimilum og öðrum úrræðum skv. 1. mgr. um land allt, hvetja sveitarfélög til að hafa tiltæk nauðsynleg úrræði og liðsinna þeim í því efni eftir því sem þörf er á. Um leyfisveitingar Barnaverndarstofu til starfsemi skv. 1. og 2. mgr. fer eftir 83. gr.
Ákvæði 80., 81. og 82. gr. eiga við um dvöl barna á heimilum skv. 1. og 2. mgr. eftir því sem við á.
Um stofnun og rekstur heimila samkvæmt ákvæði þessu fer að öðru leyti eftir reglugerð sem félagsmálaráðherra setur að fengnum tillögum Barnaverndarstofu.
85. gr.
Stuðningsfjölskyldur.
Ráðherra setur reglugerð að fengnum tillögum Barnaverndarstofu um stuðningsfjölskyldur þar sem m.a. skal kveðið á um hámarksvistunartíma, skilyrði fyrir leyfisveitingu og samninga við stuðningsfjölskyldur.
86. gr.
Sumardvöl á vegum barnaverndarnefnda.
Ráðherra setur reglugerð að fengnum tillögum Barnaverndarstofu um sumardvalir þar sem m.a. skal kveðið á um skilyrði fyrir leyfisveitingu, samninga um vistun, stuðning og eftirlit.
XV. KAFLI
Skipting kostnaðar af barnaverndarstarfi.
87. gr.
Fjárhagsleg ábyrgð sveitarfélags.
88. gr.
Fjárhagsleg ábyrgð ríkis.
Ríkið greiðir hluta kostnaðar vegna fósturs á grundvelli 4. mgr. 65. gr. samkvæmt ákvörðun Barnaverndarstofu. Við ákvörðun á hlutdeild ríkisins skal Barnaverndarstofa taka mið af kostnaði við að mæta sérþörfum þess barns sem ráðstafað er í fóstur á grundvelli ákvæðisins og kostnaði við þá sérstöku þjónustu, umönnun og þjálfun sem fósturforeldrum er ætlað að veita.
89. gr.
Framfærsluskylda foreldra.
Barnaverndarnefnd getur krafið foreldra um framfærslueyri með barni meðan á vistun stendur með hliðsjón af þörfum barnsins og fjárhagsstöðu og öðrum högum beggja foreldra. Barnaverndarnefnd úrskurðar um fjárhæð framfærslueyris. Úrskurðurinn er kæranlegur til kærunefndar barnaverndarmála.
Foreldri sem hefur verið svipt forsjá barns síns með dómi er ekki skylt að framfæra það.
Um ákvörðun og innheimtu framfærslueyris fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum barnalaga.
XVI. KAFLI
Vistun barna á vegum annarra en barnaverndarnefnda.
90. gr.
Heimildir foreldra til að vista barn sitt sjálfir.
Tilkynningarskylda skv. 1. mgr. gildir ekki þegar barn er vistað á opinberri stofnun eða heimili eða þegar barn er orðið 15 ára.
Þegar barnaverndarnefnd fær tilkynningu skv. 1. mgr. eða upplýsingar á annan hátt um vistun sem tilkynningarskyldan gildir um skal hún kanna hvort þörf er fyrir stuðning við foreldra sem gæti gert þeim kleift að hafa barnið hjá sér. Ef svo er ekki skal barnaverndarnefnd kanna sérstaklega hvort hagsmunum og þörfum barns sé fullnægt á nýjum dvalarstað þess.
Hafi barn verið í umsjá annarra í þrjá mánuði eða lengur samkvæmt þessari grein getur barnaverndarnefnd í heimilisumdæmi forsjárforeldra gripið til úrræða skv. 27., 28. eða 29. gr.
91. gr.
Önnur vistun barns á heimili án atbeina barnaverndaryfirvalda.
Heimilt er félagasamtökum eða öðrum aðilum að setja á stofn og reka heimili til að veita börnum viðtöku til umönnunar, stuðnings, afþreyingar eða hollra tómstunda að fengnu leyfi Barnaverndarstofu.
Ráðherra setur reglugerð að fengnum tillögum Barnaverndarstofu um framkvæmd 1. og 2. mgr. þar sem m.a. skal kveðið á um skilyrði fyrir leyfisveitingu, réttindi barna, samninga um vistun, stuðning og eftirlit.
XVII. KAFLI
Almenn verndarákvæði.
92. gr.
Útivistartími barna.
Aldursmörk þessa ákvæðis miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag.
93. gr.
Eftirlit með sýningum og skemmtunum.
Þeim sem skipuleggja eða bera ábyrgð á fyrirsætu- og fegurðarkeppni, og annarri keppni af því tagi þar sem þátttakendur eru yngri en 18 ára, er skylt að tilkynna um keppnina til Barnaverndarstofu. Ráðherra getur sett nánari reglur um þátttöku barna í slíkri keppni að fengnum tillögum Barnaverndarstofu.
Börnum yngri en 18 ára er óheimilt að taka þátt í nektarsýningum eða öðrum sýningum af kynferðislegum toga. Skipuleggjendur slíkra sýninga bera ábyrgð á því að þátttakendur í þeim hafi náð tilskildum aldri.
94. gr.
Skyldur foreldra og forráðamanna.
95. gr.
Almennt eftirlit barnaverndarnefnda.
XVIII. KAFLI
Refsiákvæði o.fl.
96. gr.
Brot gegn tilkynningarskyldu o.fl.
Ef maður lætur hjá líða að tilkynna barnaverndarnefnd um svo illa meðferð eða slæman aðbúnað barns að lífi þess eða heilsu sé hætta búin þá varðar það sektum eða fangelsi allt að tveimur árum.
97. gr.
Brottnám barns, brot gegn nálgunarbanni o.fl.
Hver sem nemur á brott barn sem barnaverndarnefnd hefur ráðstafað samkvæmt lögum þessum eða kemur því til leiðar að brotið er gegn slíkri ráðstöfun skal sæta sektum eða fangelsi allt að tveimur árum.
Brot gegn ákvæðum 2. mgr. 93. gr. varðar sektum.
Brot gegn ákvæðum 3. mgr. 93. gr. varðar sektum eða fangelsi í allt að tvö ár.
98. gr.
Brot umsjáraðila gagnvart barni.
99. gr.
Brot gagnvart börnum.
Ef maður hvetur barn til lögbrota, lauslætis, áfengis- eða fíkniefnaneyslu eða leiðir það með öðrum hætti á glapstigu þá varðar það sektum eða fangelsi allt að fjórum árum.
Hver sem sýnir barni yfirgang, ruddalegt eða ósiðlegt athæfi, særir það eða móðgar skal sæta sektum eða fangelsi allt að tveimur árum.
100. gr.
Lagaskil.
Kærunefnd barnaverndarmála tekur við meðferð allra mála sem skotið hefur verið til barnaverndarráðs og eru þar til meðferðar þegar lög þessi taka gildi, enda eigi ágreiningsefnið undir kærunefnd samkvæmt lögum þessum. Rekstur málsins fyrir kærunefnd barnaverndarmála skal þó aldrei leiða til lakari réttarstöðu aðila en leiða mundi af eldri lögum.
Hafi barnaverndarnefnd kveðið upp úrskurð um sviptingu forsjár, en úrskurðinum hefur ekki verið skotið til barnaverndarráðs eða úrskurðinum hefur verið skotið þangað en meðferð málsins er ekki lokið, fer um meðferð þess samkvæmt eldri lögum.
101. gr.
Gildistaka.
Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög nr. 58/1992, um vernd barna og ungmenna, ásamt öllum síðari breytingum á þeim lögum.
Ákvæði 4. mgr. 65. gr. og 2. mgr. 88. gr. laga þessara taka ekki gildi fyrr en 1. janúar 2003.