Kræklingarækt

Mánudaginn 02. desember 2002, kl. 15:22:55 (1926)

2002-12-02 15:22:55# 128. lþ. 43.1 fundur 286#B kræklingarækt# (óundirbúin fsp.), GAK
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 128. lþ.

[15:22]

Guðjón A. Kristjánsson:

Herra forseti. Ég verð enn á ný að lýsa miklum vonbrigðum með afstöðu hæstv. sjútvrh. Ég hefði talið að það væri virkilega þess virði að styðja við það frumkvöðlastarf sem nokkrir einstaklingar hafa unnið í kræklingarækt.

Það er svolítið undarlegt að mínu viti ef alltaf þarf að vera um einhverja stórrekstraraðila í sjávarútvegi að ræða svo að hæstv. ráðherra sjái einhverja ástæðu til þess að styrkja það verkefni.