Þingfrestun

Föstudaginn 13. desember 2002, kl. 15:51:29 (2809)

2002-12-13 15:51:29# 128. lþ. 60.91 fundur 343#B þingfrestun#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur, 128. lþ.

[15:51]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Forseti Íslands gjörir kunnugt: ,,Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 128. löggjafarþings, frá 13. desember 2002 til 21. janúar 2003.

Gjört í Reykjavík, 13. desember 2002.

Ólafur Ragnar Grímsson.

--------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

Samkvæmt þessu umboði og með vísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir að fundum Alþingis, 128. löggjafarþings, er frestað.

Leyfi ég mér að óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, gleðilegra jóla og farsæls nýárs.