Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 33. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 33  —  33. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um sjálfbæra atvinnustefnu.

Flm.: Kolbrún Halldórsdóttir, Árni Steinar Jóhannsson, Jón Bjarnason,

Steingrímur J. Sigfússon, Þuríður Backman, Ögmundur Jónasson.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að móta, í samráði við sveitarfélög, samtök atvinnurekenda og launafólks og opinber ráð og rannsóknastofnanir, rammaáætlun um sjálfbæra atvinnuþróun á Íslandi með hliðsjón af Dagskrá 21 og Staðardagskrá 21 og vinna að framgangi hennar stig af stigi.
    Slík stefnumótun miði meðal annars að því:
          að atvinnuvegir landsmanna lúti lögmálum sjálfbærrar þróunar og miðist við hrein framleiðsluferli og sjálfbæra nýtingu auðlinda,
          að skapa nýjum atvinnugreinum á sviði þekkingar og tækni í umhverfismálum hagstæð vaxtarskilyrði og efla þannig atvinnulíf og auka fjölbreytni þess,
          að beislun innlendra orkulinda hafi að markmiði að vistvæn orka komi í stað innflutts jarðefnaeldsneytis samhliða því sem komið verði í veg fyrir orkusóun,
          að fylgt verði alþjóðlegum skuldbindingum um losun gróðurhúsalofttegunda í samræmi við markmið rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar og Kyoto- bókunina,
          að móta umhverfisstefnu með „grænu bókhaldi“ í stofnunum og fyrirtækjum og þróa og birta „græna þjóðhagsreikninga“,
          að taka upp „græna skatta“ stig af stigi og draga í staðinn úr núverandi skattheimtu og leggja á umhverfisgjöld til að ýta undir sjálfbær framleiðsluferli og örva endurnýtingu,
          að draga úr sorpmyndun með því að flokka og endurnýta sorp og lífrænan úrgang,
          að tryggja að skipulag og landnotkun lúti langsæjum markmiðum um sjálfbæra landnýtingu, náttúruvernd og verndun menningar- og búsetuminja,
          að stuðla að rannsóknum og menntun þannig að ætíð sé til haldgóð þekking aðgengileg fyrir almenning og vel menntað starfsfólk til að stuðla að sjálfbærri atvinnuþróun,
          að styrkja byggðir landsins með fjölgun starfa og fjölbreyttari atvinnutækifærum á sviði umhverfis- og náttúruverndar.
    Rammaáætlunin um sjálfbæra atvinnuþróun verði kynnt á Alþingi eigi síðar en á haustþingi 2004.

Greinargerð.


    Tillaga sú sem hér er flutt er endurflutt frá 126. löggjafarþingi, þskj. 278 253. mál, og er efnislega af sama toga og 590. mál 125. löggjafarþings, þskj. 892, sem flutt var af þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs.
    Umhverfis- og náttúruvernd er óaðskiljanlegur hluti farsællar samfélagsþróunar á 21. öld og skilyrði þess að mannkynið haldi velli. Umhverfis- og náttúruvernd mun einnig skipta sköpum í baráttunni fyrir því að viðunandi jöfnuður náist með einstaklingum og þjóðum. Allir geta lagt sitt af mörkum til umhverfis- og náttúruverndar og þannig orðið virkir þátttakendur í sameiginlegri vegferð heimsbyggðarinnar í átt til sjálfbærrar þróunar. Þetta á ekki síður við hér á Íslandi en annars staðar. Því er mikilvægt að nú þegar verði hafist handa við að skipuleggja hvernig Íslendingar geti byggt upp sjálfbæra atvinnustefnu þar sem umhverfisvernd og atvinnuuppbygging fara saman. Ein helsta forsenda þess að svo geti orðið er að skilningur á þeim miklu atvinnutækifærum sem í raun felast í markvissri og metnaðarfullri umhverfisvernd verði efldur. Nauðsynlegt er að eyða tortryggni sem oftar en ekki stafar af því að litið er á umhverfisvernd sem dragbít á þróttmikið atvinnulíf eða jafnvel andstæðu þess. Vernd náttúru og umhverfis er ekki einungis skylda okkar við komandi kynslóðir heldur einnig uppspretta tækifæra.
    Tillaga sú sem hér er flutt miðar að því að allir atvinnuvegir þjóðarinnar lúti lögmálum sjálfbærrar þróunar, við alla framleiðslu verði lögð áhersla á hrein framleiðsluferli og sjálfbæra nýtingu auðlinda. Mikilvægt er að allt kapp verði lagt á að varðveita hreinleika lands og sjávar, enda er slíkt forsenda fyrir framleiðslu og sölu á hollum neysluvörum. Vinna þarf markvisst að því að framleiðsluvörur þjóðarinnar standi undir ímynd hollustu og hreinleika.
    Þá miðar tillagan að því að komið verði á umhverfisstefnu og „grænu bókhaldi“ í stofnunum og fyrirtækjum. Mikilvægt er að koma því á að birtir verði svokallaðir “grænir þjóðhagsreikningar“ auk þess sem gera þarf gagngera áætlun um endurskoðun skattkerfisins sem miði að því að taka í áföngum upp „græna skatta“. Markmiðið verði að innkaupsverð vöru endurspegli þann umhverfiskostnað sem framleiðsla, notkun og eyðing vörunnar hefur í för með sér.

Tækni og menntun.
    Nauðsynlegt er að ryðja braut nýjum starfsgreinum á sviði umhverfisfræða og fjölga menntunartækifærum í umhverfistækni og umhverfisstjórnun. Einnig ber að tengja þekkingariðnað þessum greinum og efla hann með samræmdum aðgerðum. Leggja þarf sérstaka áherslu á hvers konar rannsóknarstarf og sjá til þess að hluti opinberra fjárveitinga til rannsóknarstarfa verði merktur rannsóknum á sviði umhverfismála, svo sem umhverfistækni og umhverfisstjórnunar.
    Á Íslandi eru ákjósanlegar aðstæður til margs kyns rannsókna á sviði náttúruvísinda. Þar sem landið er stöðugt í mótun er það í rauninni lifandi kennsluefni í jarðfræði, líffræði og fleiri greinum. Rannsóknarefnin eru næg og skapa möguleika á að laða hingað erlenda vísindamenn til rannsókna í samvinnu við innlenda aðila. Norræna eldfjallastöðin, Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna, Sjávarútvegsskóli Sameinuðu þjóðanna og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar eru dæmi um stofnanir sem hægt er að efla og hafa til hliðsjónar við uppbyggingu alþjóðlegra vísindarannsókna á Íslandi. Þá mætti hugsa sér að komið yrði á vísindasetrum í tengslum við þjóðgarða og önnur friðlýst svæði.
    Frændur okkar Norðmenn hafa komið á fót aðstöðu á Svalbarða fyrir fjölda vísindamanna úr ýmsum greinum náttúruvísinda. Þar dveljast nú næstum 300 vísindamenn við rannsóknir og tengd störf yfir sumartímann og að vetrarlagi dveljast þar 90–100 vísindamenn. Háskólar og aðrar rannsóknastofnanir kosta dvöl vísindamannanna á Svalbarða og hefur starfsemin þar aukist mjög á síðustu árum.
    Annað dæmi má nefna frá japönsku eynni Hokkaido þar sem grænþörungurinn Cladophora aegagropila þekur stór botnsvæði í vatni einu og nær þvílíkri stærð að það hefur gert hann að miklu aðdráttarafli fyrir vísindamenn og ekki síður ferðamenn frá öllum heimshornum. Þetta vatn, Akanvatn, mun vera annað af tveimur vötnum í heiminum þar sem þessi þörungur nær slíkri stærð, hitt vatnið er Mývatn.
    Ljóst er að náttúra landsins og fjölbreytileg vistkerfi hennar eru uppspretta atvinnutækifæra jafnt í ferðamennsku sem í vísindasamfélaginu. Nú hafa verið settar upp tvær skrifstofur á Akureyri sem tengjast umhverfissamstarfi Norðurlandanna, Bandaríkjanna, Kanada og Rússlands. Önnur þeirra (CAFF – Conservation of Arctic Flora and Fauna) hefur umsjón með samvinnuverkefni um náttúruvernd á norðurslóðum og hin (PAME – Protection of the Arctic Marine Environment) annast þau verkefni samstarfsins sem lúta að verndun hafsins. Skrifstofurnar skapa möguleika á enn frekara samstarfi á sviði vísinda, tækni og menntunar.
Íslendingar eiga líka að nýta sér sóknarfæri sem felast í því að þróa umhverfisvæna tækni á ýmsum sviðum en hún verður stöðugt dýrmætari og eftirsóttari. Umhverfisvæn tækni er forsenda ýmiss konar vottunar eða viðurkenningar sem gefur vörum forskot á markaði. Jafnframt fer þörfin fyrir nýjar umhverfisvænar leiðir ört vaxandi með aukinni alþjóðlegri samvinnu um vernd umhverfis og náttúru, ekki síst í iðnvæddum ríkjum.

Orkumál.
    Mikilvægt er að taka upp sjálfbæra orkustefnu með það að markmiði að endurnýjanlegir orkugjafar leysi jarðefnaeldsneyti af hólmi og dregið verði úr orkusóun og losun gróðurhúsalofttegunda. Taka verður tillit til umhverfis- og náttúruverndar í áætlunum um nýtingu vatnsafls og jarðvarma og fresta öllum stóriðjuframkvæmdum uns lokið er gerð rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Gera þarf átak í rannsóknum á vistvænum orkugjöfum á borð við vindorku, sólarorku, virkjun sjávarfallanna og virkjun djúpsjávarstrauma í úthöfunum.
    Sjálfbær orkustefna er gríðarlega mikilvægur liður í sjálfbærri þróun á jörðinni. Núverandi orkubúskapur heimsins er í hrópandi andstöðu við þá hugmyndafræði. Íslendingar eru svo lánsamir að eiga miklar endurnýjanlegar orkulindir og því er mikilvægt að nýta þær eins skynsamlega og kostur er. Sú stóriðjustefna sem nú er fylgt bindur gríðarlegt orkumagn í fáeinum stórverksmiðjum. Hverfa verður af þeirri braut ef Íslendingar ætla að eiga þess kost að taka í notkun umhverfisvæna orkugjafa í stað jarðefnaeldsneytis og verða sjálfum sér nægir um orku. Samfara stóriðjustefnunni hefur megináhersla verið lögð á stórar vatnsaflsvirkjanir með hámarksrekstrarhagkvæmni án tillits til umhverfiskostnaðar. Flutningsmenn tillögunnar hafna þessari stefnu og telja rétt að fresta öllum stóriðjuáformum þar til langtímaáætlun um vernd og nýtingu allra vatnsfalla og jarðhitasvæða á landinu liggur fyrir. Í því sambandi ber að styðja vinnu við rammaáætlun ríkisstjórnarinnar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma og bíða niðurstöðu hennar áður en frekar er aðhafst í virkjanamálum. Mikilvægt er einnig að ákvarða stjórnsýslulegt vægi þeirrar rammaáætlunar, svo hana dagi ekki uppi sem leiðbeinandi plagg, sem ráðamönnum ber engin skylda til að fylgja.
    Varðandi þróun í virkjanamálum verður að teljast skynsamlegt að huga í auknum mæli að smávirkjunum sem hafa sáralítil umhverfisáhrif og gætu skapað störf í dreifbýli, ekki síst til sveita. Kanna ber möguleika smávirkjana á að tengjast orkuflutningsneti Landsvirkjunar sem keypti þá raforkuna af eigendum slíkra virkjana. Jafnframt eru aðstæður hér á landi ákjósanlegar til að vinna að rannsóknum á nýjum orkuberum eða orkugjöfum og gætu þær haft í för með sér mörg störf á sviði vísinda. Frekari rökstuðning um þetta málasvið er að finna í greinargerð með tillögu til þingsályktunar um sjálfbæra orkustefnu sem tveir flutningsmenn þessarar tillögu fluttu á 125. og 126. löggjafarþingi (sjá þskj. 302, 274. mál 126. löggjafarþings).

Endurvinnsla og endurnýting.
    Mikilvægt er að draga úr sorpmyndun um a.m.k. 5% á ári næstu fimm árin. Flokka þarf sorp í auknum mæli jafnt frá heimilum sem atvinnustarfsemi og bæta skil til móttökustöðva með sérstakri áherslu á efni sem brotna hægt niður í náttúrunni, svo sem gúmmí og nælon. Nauðsynlegt er að endurskipuleggja fráveitukerfi landsmanna með áherslu á vistvæna hreinsiferla og endurnýta ætti allan lífrænan úrgang til jarðgerðar og framleiðslu á lífrænum áburði og auka verðmætasköpun úr hvers kyns öðrum endurunnum úrgangi.
    Stuðla ber markvisst að aukinni endurvinnslu og endurnýtingu úrgangs hér á landi. Til þess að svo megi verða þarf að gera stórátak í flokkun sorps og annars úrgangs, bæði frá heimilum og fyrirtækjum. Lykilatriði í þeirri þróun er skilningur á því að endurvinnsla er hluti af náttúruvernd og er atvinnuskapandi þrátt fyrir þann kostnað sem hún hefur í för með sér. Með aðild sinni að Ríó-yfirlýsingunni 1992 hafa Íslendingar ákveðið að taka upp svokallaða mengunarbótareglu. Hún felur í sér að miða skuli við að sá sem veldur mengun borgi fyrir þær ráðstafanir sem gera þarf til að koma í veg fyrir umhverfisskaða af völdum mengunarinnar. Ljóst er að í framtíðinni mun gjaldtaka fyrir sorphirðu og förgun í vaxandi mæli taka mið af þessari reglu þannig að hver og einn beri kostnaðinn af meðferð síns sorps. Þegar hafa nokkur sveitarfélög hafið undirbúning að sorphirðukerfi sem á að hvetja fólk til að minnka sorp. Þar yrði heimilisúrgangur vigtaður og sorphirðugjöld miðuð við magnið.
    Á undanförnum árum hafa nokkrir aðilar hér á landi unnið að vöruþróun í tengslum við endurvinnslu með góðum árangri. Svo dæmi sé tekið hefur Sæplast hf. þróað endurvinnanleg fiskkör frá árinu 1994, svonefnd MPC-kör, sem eru einstök á markaðinum. Þau eru dýrari í innkaupum en hefðbundin kör en á móti kemur að auðvelt er að endurnýta plastið í þeim á umhverfisvænan hátt þegar þar að kemur. Í hefðbundnum körum er pólý-úretan einangrun sem gerir ómögulegt að endurvinna þau og því er mun dýrara að farga þeim. Annað fyrirtæki sem hefur farnast vel á þessu sviði er Gúmmívinnslan hf. sem framleiðir öryggishellur úr endurunnu gúmmíi og jók sölu sína á endurunnum vörum um 100% frá 1998 til 1999. Þá hefur Úrvinnslan hf. sérhæft sig í framleiðslu á brettakubbum úr pappa og plasti sem fellur til í landbúnaði. Loks má nefna að Hampiðjan hefur verið að feta sig áfram með framleiðslu á girðingarstaurum úr endurunnu plasti.
    Víða um land er ástand fráveitumála afar slæmt og ljóst að ráðast þarf í mjög dýrar framkvæmdir til að bæta þar úr. Enginn vafi leikur á því að hér um bil öll sveitarfélög landsins munu eiga afar erfitt með að standa undir framkvæmdum við nauðsynlegar hreinsistöðvar. Kostnaður vegna skolphreinsunar mun í framtíðinni að öllum líkindum dreifast æ meir í samræmi við mengunarbótaregluna og lenda að töluverðu leyti á fyrirtækjum. Í þessu felast hins vegar líka tækifæri því að hér á landi fer mikill úrgangur frá matvælaframleiðslufyrirtækjum út í holræsi og þaðan til sjávar. Þegar þessum úrgangi er blandað saman við húsaskolp og það síðan grófhreinsað með miklum tilkostnaði verður til þurrefni sem í besta falli nýtist til landgræðslu en meiri hluta lífrænna efna er dælt í sjóinn.
    Með því að skilja að húsaskolp og skolp frá matvælaiðnaði og stóreldhúsum má bæði draga úr kostnaði og búa til verðmæti úr skolpinu. Frá fiskvinnslunni á Íslandi fara um 10.000 tonn af nýtanlegu þurrefni á ári og frá sláturhúsunum fara sennilega um 500 tonn. Með nýrri hreinsitækni geta t.d. fiskvinnslufyrirtæki hreinsað sitt eigið skolp, sjálfum sér og umhverfinu til hagsbóta. Í fiskvinnslu sem framleiðir 50 tonn af afurðum á dag, svo dæmi sé tekið, fellur til nægilegt magn af lífrænu efni til að framleiða lífrænan áburð fyrir 300 hektara af ræktuðu landi á ári. T.d. mundi frárennsli frá allri fiskvinnslu á Akureyri duga til að framleiða lífrænan áburð fyrir 10–15% af ræktuðu landi í Eyjafirði. Þessi áburður hefur þann stóra kost umfram húsdýraáburð að í honum eru engin óæskileg fræ, hvorki illgresisfræ né önnur. Ef Íslendingar tileinkuðu sér þessa vistvænu hreinsitækni væri stærsta hindrunin fyrir þróun lífræns landbúnaðar hér á landi úr sögunni.
    Önnur leið til að búa til verðmæti úr lífrænum úrgangi er að framleiða gas sem gæti komið í stað olíu. Fiskvinnslufyrirtækið í dæminu hér að framan gæti með vistvænu hreinsiferli framleitt eldsneyti sem svarar hálfu tonni af olíu á dag og t.d. nýtt það til að knýja bifreiðar og vinnuvélar á vegum fyrirtækisins. Búnaðurinn sem til þarf kostar á bilinu 2–10 millj. kr. eftir stærð fyrirtækisins en borgar sig hratt upp. Ef áfram er miðað við 50 tonna framleiðslu á dag er hagnaðurinn 30.000 kr. á dag eða 7 millj. kr. á ári ef lífræni áburðurinn er verðlagður eins og tilbúinn áburður. Þessi hreinsitækni er allt í senn umhverfisvæn, hagkvæm og atvinnuskapandi. Henni fylgja störf tæknimanna og umsjónarmanna á hverjum stað. Hún dregur úr mengun, stuðlar að aukinni endurnýtingu og bætir ímynd matvælafyrirtækjanna og íslensks atvinnulífs.
    Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands hefur magn úrgangs sem er grafinn í jörð stöðugt farið vaxandi frá 1992 og nam árið 1999 157.000 tonnum eða um tæp 68% af því sem til féll á árinu. Afar dýrt er að grafa svo stóran hluta sorpsins, ekki er um varanlega lausn að ræða og enn fremur er verið að kasta verðmætum á glæ. Einfaldasta og hagkvæmasta leiðin til að draga úr þessu magni er með meiri flokkun og endurvinnslu, m.a. á pappír, plasti og ekki síst lífrænum úrgangi. Engar tölur eru aðgengilegar um hlutfall lífræns úrgangs af fyrrnefndu magni. Þó liggur fyrir að árlega eru grafin 10.000 tonn af lífrænum úrgangi frá sláturhúsum hér á landi. Hægt er að geta sér til um magn lífræns úrgangs sem fellur til á íslenskum heimilum. Í Bandaríkjunum er hlutfall lífræns úrgangs af heimilissorpi um 30% (sjá t.d. Backyard Composting, Harmonious Press, 1992, bls. 7). Heildarmagn heimilisúrgangs hér á landi er um 71.000 tonn þannig að ætla má að þar af séu yfir 20.000 tonn af lífrænum úrgangi að því gefnu að hlutfallið sé svipað hér og í Bandaríkjunum. Hvað sem því líður er ljóst að magnið er verulegt og mætti hæglega nýta til jarðgerðar eða annarrar verðmætasköpunar með svipuð um hætti og áður er lýst. Ekki verður fullyrt hér um arðsemi þess en það er án efa skynsamlegt að nýta sem mest af lífrænum úrgangi til landgræðslu og áburðarframleiðslu.

Sjávarútvegur.
    Í sjávarútvegi verður að leggja áherslu á notkun vistvænna veiðarfæra og umhverfisvænna vinnsluaðferða. Vinna þarf markvisst að því að draga úr orkunotkun á aflaeiningu og hvetja til varkárni í umgengni við auðlindina og allt lífríki sjávar. Nauðsynlegt er að marka stefnu sem miðar að fullvinnslu afla og finna leiðir til að nýta allan lífrænan úrgang sem til fellur í sjávarútvegi, jafnt í landvinnslu sem á hafi úti.
    Flutningsmenn telja brýnt að undirstöðuatvinnugrein landsmanna, sjávarútvegurinn, verði löguð að kröfum um vistvænni veiðar og vinnslu aflans. Þar fara saman hagsmunir umhverfisins og atvinnugreinarinnar sjálfrar þar sem útflutningur sjávarafurða styðst mjög við ímynd íslenskrar náttúru. Það gefur íslenskum sjávarútvegi talsvert forskot að þar er ekki við stórkostleg vandamál að eiga vegna ofveiði. Stöðugt eru gerðar meiri kröfur um vottun afurða með tilliti til umhverfissjónarmiða og neytendur spyrja æ oftar ekki aðeins um hvaðan varan sé komin heldur hvernig hún hafi verið unnin á öllum stigum framleiðslunnar. Í þessari þróun felast því ýmis tækifæri fyrir Íslendinga ef þeir bera gæfu til að huga betur að umhverfismálum í sjávarútvegi. Okkur ber að leggja áherslu á fullvinnslu aflans með vistvænu framleiðsluferli þannig að sem mest verðmæti fáist fyrir afurðirnar með sem minnstum áhrifum á umhverfið. Í því sambandi vísast til þess sem fyrr er sagt um endurvinnslu lífræns úrgangs.
    Áhrif veiðarfæra á lífríki sjávar eru eitt af mikilvægustu umhverfismálum þessa atvinnuvegar. Rannsóknir í Norðursjó benda til að um 50% af yfirborði sjávarbotnsins þar sé raskað á hverju ári. Enn er lítið vitað um áhrif dragnóta- og botnvörpuveiða á lífríkið á hafsbotninum en ljóst er að toghlerar botnvörpunnar valda þar nokkru raski. Á síðustu árum hafa fregnir borist af stórkostlegri eyðileggingu kóralsvæða á hafsbotni við Noreg og fyrir liggur að þar hefur mikilvægum uppvaxtarsvæðum nytjafiska verið spillt til frambúðar. Það er því allra hagur að rannsóknir á áhrifum veiðarfæra á lífríki sjávar verði efldar og unnið verði markvisst að þróun vistvænni veiðarfæra.
    Orkunotkun í sjávarútvegi er ekki síður stórt mál. Losun koltvíoxíðs, sem er helsta gróðurhúsalofttegundin, frá fiskiskipaflotanum hefur aukist mikið frá árinu 1982 þegar hún nam 588.000 tonnum. Árið 1996 var losunin í hámarki og nam þá 868.000 tonnum sem er 48% yfir losuninni 1982. Árið 2001 var þessi losun hins vegar 721.000 tonn og hafði því aukist um tæp 23% frá 1982. Hlutur fiskiskipaflotans í heildarlosun koltvíoxíðs var um 26% árið 2001. Olíunotkun flotans hefur aukist úr rúmlega 187.000 tonnum árið 1982 í nálega 225.000 tonn árið 2001. Ástæður þessa er trúlega fyrst og fremst að finna í stærri og afkastameiri togurum sem eru búnir kraftmeiri vélum og nota sífellt stærri og þyngri veiðarfæri. Því hljóta að vakna áleitnar spurningar um samsetningu flotans með tilliti til orkunotkunar. Núna er orðið flóknara en áður var að finna haldbærar upplýsingar um eldsneytisnotkun skipa eftir stærðarflokkum en þó fást vísbendingar ef bornar eru saman tölur fyrri ára úr ritum Orkustofnunar og Hagstofunnar um það að út frá umhverfissjónarmiðum sé mun hagkvæmara að stunda veiðar á smærri skipum með léttari veiðarfæri. Þannig er orkunotkun á aflaeiningu mun meiri á stærri skipunum, sem draga þungu veiðarfærin og þurfa að sigla langar leiðir til að sækja aflann. Togaraflotinn sækir að miklu leyti á fjarlæg mið þar sem öðrum skipum verður ekki beitt og fer því oft miklar vegalengdir í veiðiferðum. Samt sem áður er greinilegt að togararnir nota óhemjumikla olíu við veiðar sínar miðað við smærri skip. Þegar litið er á aflamagn og aflaverðmæti sem skipin skila fyrir hvert tonn af olíu er munurinn mikill en hafa ber í huga að veiðar á uppsjávarfiskum gætu skekkt myndina töluvert. Þar er aflamagn mikið en verðmæti tiltölulega lítið hlutfallslega. Tölur þær sem aðgengilegar eru gefa sterkar vísbendingar um að báta- og smábátaflotinn skili margföldu aflaverðmæti á hvert tonn af olíu miðað við það sem gerist í togaraútgerð. Þessa þætti er nauðsynlegt að rannsaka til hlítar og nota niðurstöðurnar til að þróa fiskveiðar á Íslandsmiðum í átt til umhverfisvænni veiðiaðferða.
    Brottkast afla hefur lengi verið vandamál í íslenskum sjávarútvegi. Útgerðin hefur borið því við að ekki sé fjárhagslegur hagur af því að færa undirmálsfisk og úrgang að landi og því fer hvort tveggja allt of oft í sjóinn. Um þetta atriði eru ekki allir á eitt sáttir og hefur því verið haldið fram að úr þeim 60 þúsund tonnum, sem fullvinnsluskip henda árlega í sjóinn, megi vinna afurðir að verðmæti 1,5 milljarð kr. Leita verður leiða til að nýta allan þann afla sem kemur úr sjó og tryggja þannig breytta umgengni við hafið. Meðal þess sem kanna má í þessu sambandi er að styrkja fyrirtæki til að gera út skip sem tækju við þessum úrgangi og færðu hann að landi. Slík tilraun mundi færa okkur heim sanninn um það hversu mikil verðmæti eru í raun fólgin í þeim afla og úrgangi, sem eins og málum er nú háttað, er hent í sjóinn.

Ferðaþjónusta.
     Ferðaþjónusta og náttúruvernd geta farið vel saman, enda er sjálf náttúran sú auðlind sem ferðaþjónustan byggist á. Mikilvægt er að efla þessa ungu atvinnugrein ferðaþjónustuna. Það verður m.a. gert með því að efla náttúruvernd sem er ein undirstaða blómlegrar ferðaþjónustu. Gera þarf sérstakt átak í atvinnuuppbyggingu í tengslum við þjóðgarða og önnur friðlýst svæði. Landvörðum og leiðsögumönnum þarf að fjölga, styrkja þarf stöðu þeirra og nauðsynlegt er að efla menntun í ferðaþjónustu og auka fjölbreytni hennar. Koma þarf á fót tilraunaverkefnum um sjálfbær samfélög undir merkjum vistmenningar og þau samfélög sem þegar eru til þarf að styrkja.
    Ferðaþjónusta fer ört vaxandi hér á landi enda hefur fjöldi ferðamanna sem kemur til landsins rúmlega sexfaldast á síðustu tíu árum. Árið 2000 komu rúmlega 303 þús. erlendir ferðamenn til Íslands og fjölgaði um 15% frá árinu áður. Gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum námu 30 milljörðum kr. árið 2000 og 28 milljörðum kr. árið 1999. Samkvæmt opinberum tölum má gera ráð fyrir að ferðaþjónustan skapi u.þ.b. 13% gjaldeyristekna okkar og hefur það hlutfall aukist um meira en 30% frá árinu 1995, og eru þá tekjur af innlendum ferðamönnum ótaldar. Hlutfall ferðaþjónustu af vergri landsframleiðslu 1999 var 4,5% á móti 7,5% hlut fiskveiða og 1,5% hlut ál- og kísilmálmframleiðslu. Ferðaþjónusta er sú atvinnugrein sem vex hraðast á Íslandi og samkvæmt upplýsingum frá Samtökum ferðaþjónustunnar voru 2.848 starfsmenn í flugrekstri, hótelrekstri og hjá ferðaskrifstofum 1998 en á sama tíma var 761 starfsmaður í áliðnaði og orkuverum.
    Enginn vafi leikur á því að náttúra Íslands er það aðdráttarafl sem öðru fremur laðar erlenda ferðamenn hingað til lands í svo miklum mæli. Það er því mikið hagsmunamál fyrir ferðaþjónustuna að viðhalda óspilltri náttúru eftir fremsta megni og varðveita þannig auðlindina til framtíðar. Ferðaþjónustu á Íslandi verður að skipuleggja og reka í anda sjálfbærrar þróunar í sátt við landið. Aðeins þannig er mögulegt að gera ferðaþjónustuna að blómlegri atvinnugrein til framtíðar og gæta þess um leið að náttúra og umhverfi hljóti ekki skaða af. Hluti af sjálfbærri ferðaþjónustu er að styrkja menningarsamfélög til að vekja athygli ferðamanna á menningu og sögu viðkomandi þjóðar. Þar eiga Íslendingar vannýtta auðlind sem sjálfsagt er að nota til að efla ferðaþjónustuna.
    Jafnframt ber að nefna heilsutengda ferðaþjónustu sem er meðal nýjustu vaxtarbrodda í þessum atvinnuvegi. Heilsutengd ferðaþjónusta gæti átt mikla framtíð fyrir sér á hér á landi þar sem hér er m.a. hreint loft og heilnæmt vatn. Nægir að benda á hina miklu uppbyggingu sem hefur orðið í tengslum við Bláa lónið að undanförnu. Árið 1999 voru gestir þar rúmlega 250 þús. og gert er ráð fyrir 350 þús. gestum árið 2000. Þar er aðstaða til meðhöndlunar húðsjúkdóma og framleiðslu á húð- og snyrtivörum. Aðstandendur starfseminnar hafa nú hrint í framkvæmd rannsóknum á lífríki svæðisins og hlutu fyrir slíkt starf nýsköpunarverðlaun Rannsóknarráðs Íslands og Útflutningsráðs árið 2000 og markaðsverðlaun ÍMARK 2001.
    Til að tryggja sjálfbæra þróun ferðaþjónustunnar þarf að vinna fjölmörg verk. Nauðsynlegt er að kortleggja betur helstu ferðamannasvæði og stýra ferðamannastraumnum þannig að álag verði ekki of mikið á vinsælustu svæðunum. Einnig þarf að auka landvörslu til mikilla muna, bæði til að auka öryggi ferðamanna og koma í veg fyrir landspjöll. Þá er nauðsynlegt að sinna rannsóknarverkefnum sem tengjast náttúruvernd og álagi á ferðamannastaði til að vakta auðlindina. Allt er þetta atvinnuskapandi og óhjákvæmilegt að leggja í kostnað sem því fylgir. Þar að auki sýnir vaxandi markaður fyrir ferðaþjónustu sem stenst kröfur um sjálfbæra þróun að umhverfisvernd í þessari atvinnugrein hefur beinan efnahagslegan ávinning í för með sér. Reynsla annarra þjóða sýnir að ferðamenn eru tilbúnir að greiða mun hærra verð fyrir ferðir inn á verndarsvæði og um þjóðgarða, jafnvel allt að 100% hærra verð en greitt er fyrir ferðir um óskilgreind svæði.
    Eitt mikilvægasta atriðið er að gera stórátak í skipulagi vinsælla ferðamannastaða svo að þeir geti borið að skaðlausu álag af ferðamannastraumi, ella verður að takmarka aðsókn að þeim. Einnig er mikilvægt að gera áætlun sem miði að því að dreifa ferðamönnum um landið.

Landbúnaður.
     Í landbúnaði ber að leggja áherslu á lífræna búskaparhætti og stefna að því að hlutfall lífrænnar framleiðslu verði 5% á árinu 2005. Gera verður markvissar áætlanir um beitarstjórnun í öllum landshlutum og tryggja að gæðastýring í landbúnaðarframleiðslu skili tilætluðum árangri. Nauðsynlegt er að mæta auknum kröfum um merkingu afurða hvað varðar framleiðsluaðferðir og rekjanleika ásamt gæðavottun til að tryggja fæðuöryggi.
    Íslenskur landbúnaður mun víðast hvar vera stundaður í meiri sátt við náttúruna en gengur og gerist í flestum nálægum löndum. Þó þarf að taka fyrir ofbeit sauðfjár og hrossa í úthaga þar sem hennar gætir enn. Ef rétt er á haldið eru mikil tækifæri fólgin í því að taka í auknum mæli upp lífræna búskaparhætti hér á landi. Meginhindrunin í vegi þeirrar þróunar hefur verið skortur á lífrænum áburði þar sem innlendur húsdýraáburður hefur ekki dugað til. Með vistvænu hreinsiferli á lífrænu skolpi og endurnýtingu lífræns úrgangs er hægt að ryðja þessari hindrun úr vegi. Liður í endurheimt landgæða þryfti að vera friðun auðna og rofsvæða fyrir beit.
    Markaður fyrir lífrænt vottaðar vörur stækkar stöðugt. Í fyrstu var eftirspurnin aðallega bundin við grænmeti, korn og ávexti en í seinni tíð hefur hún náð til annarra afurða á borð við kjöt, mjólk og egg. Lífrænn landbúnaður er vaxtarbroddur nýsköpunar sem hefur mjög jákvæða ímynd og fellur afar vel að hugmyndum um sjálfbæra þróun. Með meiri hvatningu, stuðningi og rannsóknum gæti lífrænn landbúnaður einnig stuðlað að traustari byggð til sveita og uppbyggingu í úrvinnsluiðnaði.
    Nú vantar lífrænt vottað dilkakjöt á markað í nágrannalöndum okkar og á síðustu árum hefur megnið af lífrænni framleiðslu íslenskra bænda farið á erlendan markað. Af þeim sökum er ekki til nægilegt magn fyrir innanlandsmarkað. Þetta sýnir að nú er lag fyrir fleiri bændur að snúa sér að lífrænni framleiðslu. Varlega áætlað má gera ráð fyrir að 50 bændur séu í stakk búnir að stíga þetta skref án mikillar fyrirhafnar. Þeir bættust þá í hóp þeirra 30 sem nú þegar stunda lífræna ræktun. Það er ekki einfalt að stíga þetta skref og víðast hvar í Evrópu hafa bændur fengið hvatningu frá hinu opinbera kerfi í formi aðlögunarstyrkja fyrstu árin sem þeir stunda búskap af þessu tagi. Nú er það opinber stefna í Evrópusambandinu að hvetja bændur til að breyta búskaparháttum sínum á þennan hátt. Það væri stórt en veigamikið skref í átt til sjálfbærrar þróunar ef íslensk stjórnvöld gera slíkt hið sama.
    Ekki einasta framleiðsla á lífrænu dilkakjöti gæti orðið ábatasöm búgrein hér því að miklir möguleikar eru einnig fólgnir í grænmetis- og blómarækt. Það er vandasamt að rækta grænmeti án tilbúins áburðar og án allra eiturefna við íslenskar aðstæður, en það fæli í sér atvinnu fyrir fjölda fólks ef rannsóknir á þessu sviði væru efldar, raforkuverð til ylræktarbænda lækkað og útflutningur lífrænt ræktaðra afurða aukinn. Ekki skortir erlenda markaði því að gera má ráð fyrir að hlutdeild lífrænnar framleiðslu í löndum Evrópusambandsins, sem nú er 2%, aukist í 5–10% á næstu fimm árum. Í Þýskalandi telja 70% neytenda lífrænt ræktaðar matjurtir hollari en aðrar matjurtir og þarlendir framleiðendur anna ekki eftirspurn. Það gera Danir ekki heldur; þeir flytja inn sem svarar 30% af seldri lífrænni matvöru. Markaður fyrir lífrænar afurðir stækkar óðum í Bretlandi. Þar eru flutt inn u.þ.b. 70% af heildarneyslu lífrænna matvæla. Einnig stækkar markaður hérlendis hratt.
    Umræðan um erfðabreytt matvæli virðist styrkja markað fyrir lífrænar afurðir þar sem neytendur stilla þessum afurðum upp sem andstæðum. Það er mikil andstaða gegn erfðabreyttum matvælum um alla Evrópu og andstaðan fer vaxandi í Bandaríkjunum. Mörg lönd hafa lögleitt bann við ræktun erfðabreyttra matjurta, m.a. Brasilía sem er næstmesta kornframleiðsluland heimsins. Í Þýskalandi eru neytendur afar tortryggnir gagnvart erfðabreyttum afurðum sem kemur kannski best fram í því að segja má að næstum allur barnamatur þar sé að framleiddur úr lífrænum afurðum og þar í landi hefur brauðgerð úr lífrænt ræktuðu korni vaxið hröðum skrefum síðustu ár.
    Ljóst er að matvæli sem framleidd eru úr lífrænum afurðum eru ekki tískubóla því að markaður fyrir þessar vörur hefur verið í örum vexti í 30 ár. Einnig er ljóst að neytendur setja hollustu í auknum mæli í forgang og neysluvenjur taka mið af því. Þannig má segja að tækifærin til nýsköpunar í landbúnaði og ræktun felist í lífrænum aðferðum.

Gróðurvernd, landgræðsla og skógrækt.
    Brýnt er að marka framtíðarstefnu um gróðurvernd, landgræðslu og skógrækt með vistvænum aðferðum. Landvörslu og löggæslu á hálendinu og aðliggjandi ferðamannastöðum þarf að efla og fylgja verður fast eftir reglum um umgengni við landið og náttúruna. Stefnumörkun í skipulagsmálum hálendisins, með verndarsjónarmið í fyrirrúmi, ber að halda áfram. Allar rannsóknir á vistkerfum landsins ber að efla og hraða skráningu búsvæðagerða, sbr. áætlun Náttúrufræðistofnunar Íslands, og gerð náttúruverndaráætlunar, sbr. áætlanir Náttúruverndar ríkisins.
    Á þeim tiltölulega skamma tíma sem liðinn er frá því að búseta manna hófst á Íslandi hefur orðið stórkostleg gróðureyðing. Uppblástur hefur leikið stór landsvæði grátt og ógnar viðkvæmum svæðum, ekki síst á hálendinu sem verður ein mesta auðlind landsmanna í framtíðinni. Þrátt fyrir aukinn kraft í baráttunni gegn landeyðingu á síðustu áratugum er ljóst að betur má ef duga skal. Allar aðgerðir í þeirri baráttu verða að vera vandlega skipulagðar og byggjast á rannsóknum og þekkingu.
    Gróðurvernd á þar að vera forgangsverkefni, að verja það sem eftir er af náttúrulegu gróðurfari landsins og vistkerfi sem því tengjast. Nauðsynlegt er að friða svæði sem eru illa farin og skapa þannig forsendur fyrir endurheimt landgæðanna. Aðferðir við uppgræðslu verða að standast kröfur um sjálfbæra þróun og sérstaklega ber að varast innflutning plöntutegunda sem geta skaðað íslenskt lífríki. Hér verða að koma til lög um jarðvegs- og gróðurvernd sem taka heildstætt á nýtingu og verndun þessara auðlinda.
    Nú eru um 1,4% Íslands klædd skógi og kjarri en ef einungis eru talin svæði sem teljast vaxin skógi samkvæmt alþjóðlegri skilgreiningu er hlutfallið aðeins 0,3%. Þetta hlutfall er hið lægsta í Evrópu en skógleysið er hins vegar ekki náttúrulegt ástand miðað við gróðurfarsskilyrði hér á landi. Talið er að ef útbreiðsla skóga hér væri svipuð og við landnám þektu þeir á bilinu 25–30% landsins. Danir og Írar stóðu í svipuðum sporum og Íslendingar við síðustu aldamót hvað þetta snertir, með um 1% landanna vaxið skógi. Ræktunaraðgerðir þar hafa borið góðan árangur, nú eru 8% Írlands og 12% Danmerkur þakin skógi.
    Brýnt er að efla rannsóknir á þessu sviði og ljóst að mikilvægi þeirra mun aukast á nýrri öld. Í því sambandi má benda á nauðsyn þess að finna leiðir til að stunda árangursríka skógrækt í sátt við vistkerfið sem fyrir er, rannsaka áhrif hennar á vatnsbúskap, jarðvegsvernd, líffræðilega fjölbreytni o.s.frv. Þá má nefna rannsóknir á umhirðu og ræktun nytjaskóga sem nú er stunduð víða um land, skógrækt til að binda koltvísýring og til að bæta búsetuskilyrði, bæði í þéttbýli og dreifbýli.
    Endurheimt votlendis er framtíðarverkefni, sem brýnt er að leggja drög að, enda eru votlendissvæði lífseigustu vistkerfi landsins. Votlendi setur mikinn svip á náttúru Íslands en mjög hefur verið gengið á það undanfarna áratugi. Frjósamar láglendismýrar hafa verið ræstar fram í miklum mæli auk þess sem vegagerð og þéttbýlismyndun hafa tekið sinn toll, að ekki sé talað um áhrif virkjana sem hafa sökkt stórum svæðum votlendis undir miðlunarlón. Umræðan um endurheimt votlendis hefur eflst mjög síðustu ár og nú er svo komið að rannsóknir leiða í ljós miklar líkur á að við ákveðnar aðstæður og að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sé endurheimt votlendis möguleg. Vísindamenn starfa nú ötullega við að fullkomna þessar rannsóknir en eins og aðrar rannsóknir í náttúruvísindum hefur þær skort fjármagn og hvatning frá hinu opinbera hefur verið lítil. Rannsóknir á votlendi Íslands gætu skapað fjölda starfa, að ekki sé talað um sjálfa aðgerðina sem fólgin er í undirbúningi að endurheimt votlendisins. Þar er mikilvægt að standa vel og faglega að málum, enda er endurheimt á ákveðnum svæðum bæði vandmeðfarin og kostnaðarsöm. Með endurheimt votlendis vinnst margt. Landið er fært aftur til fyrra horfs sem skapar lífsskilyrði fyrir gróður og dýralíf sem áður ríkti á svæðunum. Þannig má líta á endurheimt votlendis sem lið í almennri náttúru- og landslagsvernd. Þá má gera ráð fyrir að endurheimtin auki útivistargildi svæða, þau verði áhugaverð til fuglaskoðunar og skilyrði geti skapast til veiða á fugli og fiski. Með tímanum mun endurheimt votlendis að öllum líkindum binda kolefni í stað þess að losa það út í andrúmsloftið og önnur virkni ætti að færast til fyrra horfs. Endurheimt votlendis væri þannig liður í því að hamla gegn losun koltvísýrings, metans og annarra skaðlegra lofttegunda út í andrúmsloftið.
    Jarðvegsrannsóknir er ein tegund rannsókna sem skortir tilfinnanlega hér á landi. Íslenskur jarðvegur er eldfjallajarðvegur sem er um margt afar sérstæður og sjaldgæfur í meira lagi. Sem dæmi um sérstöðu hans má nefna mjög háa fosfórbindingu, en rannsóknir á honum skortir. Hér væri um að ræða rannsóknir sem ætla mætti að vísindamenn alls staðar teldu eftirsóknarvert að komast í.
    Nauðsynlegt er að við stöndum vörð um líffræðilega fjölbreytni og leggjum okkar af mörkum til að uppfylla samninginn um líffræðilega fjölbreytni sem tók gildi hér á landi 10. desember 1994. Það gerum við fyrst og fremst með öflugum rannsóknum á vistkerfi landsins og tegundavernd, jafnt í dýra- og jurtaríkinu, einnig með því að marka varfærna stefnu hvað varðar erfðabreyttar lífverur og afurðir framleiddar úr erfðabreyttum lífverum, bæði dýrum og plöntum.

Menning og listir.
    Brýnt er að gera stefnumarkandi áætlun um stuðning við menningarstarfsemi atvinnu- og áhugamanna með það að markmiði að hann dreifist jafnar um landið og til ólíkra verkefna. Leggja ber mikla áherslu á alþýðumenningu hvers konar þar sem menningararfur þjóðarinnar og einstakra byggðarlaga verði nýttur sem efniviður til listflutnings. Gera þarf átak til að efla skráningu, uppgröft og varðveislu fornminja og annars mannvistarlandslags og sjá til þess að slíkar minjar verði aðgengilegar fyrir lærða sem leika og uppspretta atvinnutækifæra. Huga ber sérstaklega að eflingu áhugafélaga um listir og menningu í dreifbýli með það að markmiði að tengja starf þeirra t.d. skólastarfi og ferðamennsku.
    Íslendingar eiga fjölda glæsilegra menningarstofnana. Má þar nefna Þjóðminjasafn, Þjóðarbókhlöðu, Þjóðmenningarhús, Þjóðleikhús, Þjóðskjalasafn, Listasafn Íslands, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Ríkisútvarpið. Allar þessar stofnanir búa yfir möguleikum til landvinninga á lista- og menningarsviðinu. Hugmyndir og kunnátta starfsfólks slíkra stofnana er auðlind sem nýta mætti betur en gert er. Oft skortir fjármagn, en stundum hefur líka vantað hvatningu stjórnvalda. Til að nýta til fullnustu þær hugmyndir sem búa í hugskoti fræði- og listamanna þarf að gera áætlun sem stjórnvöld og stofnanir gætu komið sér saman um að fara eftir.
    Aukin tækifæri til listsköpunar og menningarstarfsemi má finna við hvert fótmál og er hægt að hugsa sér að aukið samstarf milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar geti gefið af sér nýjungar í því tilliti. Þar má nefna hugmyndir að atvinnuleikhúsum í landsfjórðungum, samstarf Listaháskóla Íslands og stofnana og félaga á landsbyggðinni, frumkvöðlasetur á sviði menningar, vísinda og lista o.fl. Sjóður sá er stofnaður var að loknu menningarborgarárinu 2000 er sannarlega skref í rétta átt. Víða um land standa auðar byggingar sem eitt sinn hýstu menntastofnanir á borð við húsmæðraskóla og héraðsskóla. Þessar byggingar gætu gegnt lykilhlutverki í að efla menningarstarfsemi á landsbyggðinni og samstarf milli aðila.
    Byggðaleikhús er dæmi um starfsemi sem gæti tengt ólíkar greinar og ólíkar stofnanir saman í skapandi starfi. Þá er sett á svið leiksýning sem sækir efnivið í sögu viðkomandi byggðarlags eða svæðis. Hópur manna velur sér verkefni, t.d. skútuöldina á Fáskrúðsfirði. Safna þarf heimildum, rituðum jafnt sem munnmælum. Þar mætti hugsa sér að unga fólkið fengi það hlutverk að taka viðtöl við eldra fólkið í bænum eða héraðinu. Skjalasafn yrði skoðað og leitað fjársjóða í því. Ættfræðingar og sagnfræðingar kæmu að málinu og þegar heimildirnar væru fengnar væri hægt að hefjast handa við ritsmíðina, skrifa leikritið. Svo þarf að safna tónlist frá tímanum, grafa upp hljóðfæri eða smíða þau og læra að leika á þau. Söngvana þarf að rifja upp og skrifa út. Dansarnir þurfa líka að vera til staðar og með réttum blæ. Þá þarf að velja sýningunni stað, mögulega verður gert upp gamalt hús eða gömul bryggja, og það þarf að sækja hugmyndir að leikmunum og búningum á byggðasafnið. Saumakonur, smiðir og málarar eru þar með komin til starfa. Síðan þarf að gefa út leikskrá eða vandaða bók með sýningunni, þá þarf ljósmyndara og grafíska hönnuði og svona mætti áfram telja. Útkoman er sýning sem getur lifað ár eftir ár og laðað ferðamenn til bæjarins, jafnt innlenda sem erlenda. Þetta er dæmi um menningartengda ferðamennsku.
    Mikil gróska hefur verið í verkefnum á sviði fornleifaverndar síðan Kristnihátíðarsjóðurinn var stofnaður og hafið að veita fé úr honum. Á því sviði er enn gífurlegt starf óunnið og mikilvægt að taka þar myndarlega á, enda er fátt vinsælla meðal ferðamanna en að sjá fornleifafræðinga að störfum og njóta leiðsagnar þeirra um söguslóðir. Fræðslugildi verkefna á sviði minjavörslunnar er óumdeilt og þyrfti að efla samstarf fornleifafræðinga, minjavarða, safnamanna og skólafólks um allar byggðir. Verðugt verkefni er einnig að skrá menningarlandslag Íslands, skrá allar búsetuminjar og koma þeim fjársjóði sem landið býr yfir í því tilliti á framfæri. Vel má hugsa sér að slíkt starf gæti auðveldað okkur að viðhalda búsetu um allt land. Til dæmis má hugsa sér verkefni sem fælist í rannsóknum og skráningu á strandmenningu íslensku þjóðarinnar. Hvernig hefur það verið í gegnum aldirnar að búa við sjávarsíðuna? Hvað hefur einkennt líf þess hluta þjóðarinnar sem þannig hefur búið? Hvaða sögur voru sagðar til sjós og hvaða söngvar sungnir?
    Enn eru ótaldir þeir möguleikar sem felast í náttúrustofum landshlutanna. Þar eru stofnanir sem komið hefur verið á fót af vanefnum, þeim ekki verið markað nægilega skýrt hlutverk og ekki verið hvatt til tengsla við aðrar stofnanir í nægilega ríkum mæli. Fullt tilefni er til að leita nýrra hugmynda um það hvernig flétta mætti náttúrustofurnar inn í menningarstarfsemi á landsbyggðinni. Þar er örugglega vannýtt auðlind. Ekki verður komist hjá því að nefna í þessu sambandi nauðsyn þess að koma Náttúruminjasafni Íslands á legg. Þó að safnið sé til og í vörslu Náttúrufræðistofnunar Íslands hefur um áratuga skeið verið óskað eftir fjárveitingu til að koma upp húsnæði yfir safnið, sem ekki hefur fengist. Það er orðið löngu tímabært að safnið fái þann sess sem því ber, sem höfuðsafn á sviði náttúruvísinda. Einnig má nefna nauðsyn þess að Íslendingar eignist höfuðsafn á sviði vísinda og tækni. Slíkt safn gæti auðgað safnaflóru landsmanna til muna.
    Þegar öllu er á botninn hvolft sést hversu mikið mætti framkvæma af hugmyndum sem lifa í hugskoti fræðimanna, vísindamanna og listamanna. Jafnt áhugamenn sem atvinnumenn búa yfir hafsjó af fróðleik og kunnáttu sem er hluti af mannauði okkar. Þessa þætti þarf að tvinna saman og leita leiða til að vefa fjölskrúðugan vef úr menningararfinum okkar þar sem hann blandast listflutningi framsýnna hugmyndasmiða.

Iðnaður o.fl.
    Í iðnaði ber að leggja áherslu á hrein framleiðsluferli, rannsóknir á vistvænum efnum sem geta komið í stað skaðlegra efna, minni umbúðanotkun og fullvinnslu úr innlendum hráefnum. Styðja ber sérstaklega við verkefni sem miða að hreinni framleiðslutækni og uppbyggingu umhverfisstjórnunarkerfa. Marka þarf stefnu um eflingu smáiðnaðar sem nýtir hugmyndaauðgi, listfengi og endurnýtingu hvers konar efna við vinnsluna.
    Huga ber sérstaklega að nýsköpun í iðnaði sem byggist á sjálfbærri nýtingu auðlinda og sjálfbærri þróun. Sem dæmi um slíkan iðnað má nefna líftækniiðnað og í því sambandi að nýlega lauk líftæknifyrirtækið Prokaria við að raðgreina allt erfðamengi áður óþekktrar hverabakteríu og fundir í henni yfir 1500 ný gen. Uppfinning af þessu tagi getur nýst við ýmsa iðnaðarferla, svo sem í lyfjaiðnaði og í matvælaiðnaði. Fleiri nýlegar uppgötvanir má nefna, en nýlega fannst örvera í hafinu við Kolbeinseyjarhrygg sem talið er að sé minnsta lífvera heims. Slík uppgötvun hefur talsverða þýðingu og það vekur athygli á starfi íslenskra vísindamanna þegar þeir ná árangri af þessu tagi með starfi sínu.
    Hvers konar hönnunariðnaði hefur vaxið fiskur um hrygg hér á landi á síðustu árum og í landinu hefur þróast kunnátta í ýmsum greinum smáiðnaðar sem byggist á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Til marks um hugmyndaauðgina er árleg handverkssýning í Hrafnagilsskóla í Eyjafirði. Einnig má nefna vistvæna húsagerðarlist, en samtök atvinnulífsins gangast fyrir námsstefnu um vistvæna byggingastarfsemi í nóvember nk. Fyrirmynd að slíkum iðnaði er m.a. sótt til annarra Norðurlanda þar sem víða hafa myndast svokallaðir vistvænir byggðakjarnar. Auk þess sem mikilvægt er að efla menntun í verklegum greinum á grunn- og framhaldsskólastigi er brýnt að hraða uppbyggingu náms í skipulagsfræðum, koma fótunum undir arkitektanám á háskólastigi og efla rannsóknir er tengjast byggingarlist. Þá er einnig brýnt að efla rannsóknir sem varpað gætu ljósi á húsasótt og áhrif raf- og segulsviðs í híbýlum manna samhliða því að þróa vistvænar aðferðir við húsbyggingar.
    Hafa verður í huga að margvíslegur iðnaður sem stundaður hefur verið á Íslandi gegnum tíðina hefur átt undir högg að sækja, nægir þar að nefna skipasmíðaiðnaðinn. Um afstöðu flutningsmanna til skipasmíðaiðnaðarins vísast til greinargerðar með þingsályktunartillögu um endurreisn skipasmíðaiðnaðar á Íslandi (sjá þskj. 380 306. mál 127. löggjafarþings). Nauðsynlegt er að móta stefnu um iðnað á Íslandi og hafa ber í huga þá hættu sem smáiðnaði ýmiss konar getur stafað af orkufrekum iðnaði, þar sem stórfyrirtækin ryðja oft úr vegi þeim sem smærri eru. Slíkt getur aukið á byggðaröskun og bitnar oft verst á jaðarsvæðum sem eru í eðli sínu viðkvæm og þurfa að njóta sérstakrar athygli stjórnvalda. Hugvit og verkþekking eru auðlindir, sem fullyrða má að Íslendingar eigi í miklum mæli. Virkjun mannauðsins er verkefni sem stjórnvöld þyrftu að sinna af natni því að í honum felast möguleikar sem auðga mannlífið án þess að ganga þurfi á náttúruauðlindir. Mannauðurinn er líka óumdeilanlega endurnýjanleg auðlind og hafa margar þjóðir komist langt í veraldlegri velferð með því með því að virkja hann af útsjónarsemi.

Vistvæn samfélög.
    Víða eru að verða til samfélög sem byggjast á hugmyndafræði vistmenningar (perma culture). Dæmi um slíkt samfélag eru Sólheimar í Grímsnesi sem voru útnefndir fyrsta vistvæna samfélagið (ECO-Village) á Íslandi af alþjóðasamtökunum Global Eco Village Network árið 1997. Markmið slíkra vistvænna samfélaga felast í því að setja í öndvegi manngildi, ræktun og umhverfismál í víðasta skilningi. Hugmyndin er byggð á því að blanda saman hefðum og nýrri tækni til að efla mannlíf sem samræmist hringrás náttúrunnar og ábyrgri nýtingu auðlinda og skerðir ekki möguleika komandi kynslóða til að fullnægja þörfum sín um. Rétt er að hvetja til þess að byggðakjarnar í þessum anda rísi sem víðast um landið. Hér er um að ræða mannfélag sem byggist á mikilvægum gildum, jafnt í andlegu sem efnahagslegu tilliti, þar sem mannrækt er í hávegum höfð og áhersla er lögð á samhljóm manns og náttúru.
    Önnur dæmi um uppbyggingu í þessum anda eru t.d. nýjasta byggðin að Hellnum á Snæfellsnesi og hugmyndir íbúa Hríseyjar að sjálfbæru samfélagi í eynni. Þess má geta að flutningsmenn þessarar tillögu stóðu að þingmáli um það efni á 126. löggjafarþingi (sjá þskj. 17 17. mál).

Meginreglur umhverfisréttar.
     Stuðla ber að öflugu samstarfi sveitarfélaga og atvinnulífs í umhverfismálum, m.a. með stuðningi við verkefni í anda sjálfbærrar þróunar og Staðardagskrár 21, í samræmi við samþykktir heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun í Ríó 1992 og framkvæmdaáætlun heimsþings Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í Jóhannesarborg 2002.
    Á heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun í Ríó de Janeiro í Brasilíu árið 1992 var m.a. samþykkt yfirlýsing, Ríó-yfirlýsingin, þar sem staðfestar voru nokkrar grundvallarreglur um samskipti manns og umhverfis sem stuðla eiga að sjálfbærri þróun. Ríki heims voru hvött til þess að taka þessar reglur upp í umhverfislöggjöf sinni. Þrátt fyrir góðan vilja og tilraunir fyrrverandi umhverfisráðherra, Guðmundar Bjarnasonar, hafa þessar meginreglur enn ekki verið festar í íslensk lög og hlýtur það að teljast löngu tímabært. Ríkisstjórnin samþykkti 1997 framkvæmdaáætlun um sjálfbæra þróun í íslensku samfélagi. Í eftirfarandi kafla, sem er úr þeirri áætlun, má lesa lýsingu á meginreglum umhverfisréttar:
    „Í Ríó-yfirlýsingunni segir að mannkyninu beri réttur til að lifa heilbrigðu og auðgandi lífi í sátt við náttúruna. Þar er einnig minnst á réttinn til þróunar, sem beri að nýta með þeim hætti að komið sé af sanngirni til móts við umhverfis- og þróunarþarfir núlifandi og komandi kynslóða. Tekið er fram að hver einstaklingur eigi rétt á upplýsingum um umhverfið, ástand þess og aðgerðir á sviði umhverfismála. Einnig á hver einstaklingur rétt á þátttöku í ákvarðanatöku sem snertir nánasta umhverfi hans.
    Segja má að þessar réttindayfirlýsingar séu ein af fjórum meginreglum sem finna má í Ríó-yfirlýsingunni. Hinar eru:
     Varúðarreglan, sem kveður á um að ekki skuli að öðru jöfnu ráðist í framkvæmdir sem kunna að hafa alvarleg eða óbætanleg umhverfisáhrif í för með sér, fyrr en sýnt sé að þær hafi ekki slík áhrif.
     Mengunarbótareglan, sem kveður á um að þeir sem spilla umhverfinu beri nauðsynlegan kostnað við að bæta skaðann og kostnað vegna aðgerða sem miða að því að koma í veg fyrir umhverfisskaða. Reglan felur m.a. í sér að þeir sem hyggja á framkvæmdir sem geta haft mengun eða umhverfisspjöll í för með sér greiði kostnað við mat á umhverfisáhrifum og umhverfiseftirlit.
     Nytjagreiðslureglan, sem felur í sér að þeir sem nýta náttúrulegar auðlindir sér til ávinnings eða ánægju greiði þann kostnað sem til fellur við verndun og viðhald þessara auðlinda.“
    Hugmyndafræði þessarar þingsályktunartillögu er að stórum hluta byggð á Ríó-yfirlýsingunni og þeim meginreglum sem þar voru staðfestar og síðan endurnýjaðar með framkvæmdaáætlun og pólitískri yfirlýsingu nýafstaðins heimsþings Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem haldið var í Jóhannesarborg í Suður-Afríku 26. ágúst til 4. september 2002. Hér er vakin athygli á nauðsyn þess að þessar fjórar grundvallarreglur verði lögfestar þótt slíkt falli utan ramma tillögunnar.

Alþjóðlegar skuldbindingar.
    Koma þarf á fót virku eftirliti með því að Íslendingar fari eftir alþjóðlegum samningum sem þeir hafa fullgilt á sviði umhverfis- og náttúruverndar, svo sem Ramsar, OSPAR, rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, samningi um líffræðilega fjölbreytni, framkvæmdaáætlun um sjálfbæra þróun í heiminum, Bernarsamningnum, samningi um aðgerðir gegn eyðimerkurmyndun, svo og samkomulagi um Norðurskautsráðið og alþjóðlegri framkvæmdaáætlun gegn mengun hafsins af völdum þrávirkra lífrænna efna.
    Nú þegar búið er að samþykkja að Ísland gerist aðili að Kyoto-bókuninni þarf að móta áætlun til að tryggja að settum markmiðum hennar verði náð, því að þótt stjórnvöld hafi fengið undanþágur frá losun gróðurhúsalofttegunda vegna orkufreks iðnaðar þá þarf að sýna aðhald til að ekki verði farið fram úr +10% úthlutuninni frá Kyoto. Horfa þarf til þeirra atvinnuskapandi tækifæra sem fullgilding bókunarinnar getur fært okkur og leggja áherslu á að draga úr losun frá samgöngum og fiskiskipaflotanum með þróun vistvænna orkugjafa. Íslensk stjórnvöld þurfa að taka undir með Vladimir Pútín, forseta Rússlands, J.M. Aznar, forseta Evrópuþingsins, og Romano Prodi, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem fyrr á þessu ári gáfu út sameiginlega yfirlýsingu, þar sem segir: „Við munum gera allt sem þarf til að tryggja að Kyoto-bókunin verði raunverulegt tæki til að leysa vandamál hnatthitunar svo fljótt sem verða má.“

Niðurlag.
    Í ljósi umræðna um efnahagsmál og atvinnuþróun undanfarin missiri virðast margir þeirrar trúar að eingöngu stóriðja geti viðhaldið efnahagsagvexti í landinu og staðið undir fjölgun atvinnutækifæra á landsbyggðinni. Flutningsmenn þessarar tillögu aðhyllast önnur sjónarmið og telja að hagvöxtur þurfi ekki að verða neikvæður á næstu árum þó að ekki komi til virkjana- eða stóriðjuframkvæmdir. Auk þess má halda því fram að meðan gælt er við stóriðjustefnu liggi aðrar hugmyndir í láginni á meðan. Þannig dragi það úr möguleikum okkar að skapa fjölbreytt atvinnulíf að einskorða sig við hugmyndir um atvinnuuppbyggingu með stóriðju. Í þessu sambandi verður einnig að hafa í huga að hlutlaust mat hefur ekki verið lagt fram á efnahagslegum áhrifum stóriðjustefnunnar.
    Með nýútkomnu riti um stefnumörkun stjórnvalda um sjálfbæra þróun í íslensku samfélagi „Velferð til framtíðar” má segja að stigið hafi verið skref sem er góðra gjalda vert, en þó verður að gagnrýna stjórnvöld fyrir metnaðarleysi í þessum efnum þar sem í ritinu virðist algerlega sniðgengin sú staðreynd að stoðirnar undir sjálfbæra þróun eru þrjár, efnahagsleg, félagsleg og vistfræðileg. Efnahagsþættinum er ekki gerð viðhlítandi skil í ritinu og lítt fjallað um stefnu Íslendinga í alþjóðaviðskiptum eða áhrif hnattvæðingar á möguleika jarðarbúa til að innleiða hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Þannig má gera enn betur ef leggja á fram sannfærandi stefnu til framtíðar, stefnu sem í raun og veru gerir komandi kynslóðum kleift að sinna þörfum sínum á sama hátt og við fullnægjum okkar þörfum nú. Lykillinn að sjálfbærri þróun er að ekki sé gengið svo á auðlindir náttúrunnar að möguleikar komandi kynslóða á að nýta þær sömu auðlindir séu skertir.
    Í þessu sambandi má vitna til orða John C. Sawhill, fyrrverandi framkvæmdastjóra Nature Conservancy í Bandaríkjunum, sem vitnað er til í nýjasta fréttabréfi Landverndar (okt. 2002), en hann sagði: „Þegar fram líða stundir verður samfélag okkar ekki bara dæmt af þeim mannvirkjum sem okkur tókst að reisa, heldur öllu fremur af þeim mikilvægu náttúrufyrirbærum sem við neituðum að spilla.“