Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 148. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 148  —  148. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um aðgerðir til að auka flugumferð um Keflavíkurflugvöll.

Frá Kristjáni Pálssyni.



     1.      Hvað er nú gert eða fyrirhugað að gera til að auka flugumferð um Keflavíkurflugvöll?
     2.      Hvaða aðgerðir koma helst til greina til að bæta samkeppnisstöðu Keflavíkurflugvallar gagnvart öðrum alþjóðaflugvöllum?
     3.      Hvað er flugvallarskattur hár annars vegar í Kaupmannahöfn og Frankfurt og hins vegar í Keflavík?