Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 201. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 204  —  201. mál.




Fyrirspurn



til ráðherra Hagstofu Íslands um fjölda einstaklinga sem tengjast gjaldþrotum félaga.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



    Hversu margir einstaklingar tengjast hlutafélögum og einkahlutafélögum (með setu í stjórn þeirra) sem hafa verið úrskurðuð gjaldþrota árin 1992–2002? Eru mörg dæmi um sömu einstaklinga, og þá hversu mörg? Óskað er eftir að svarið verði sundurgreint eftir atvinnugreinum.


Skriflegt svar óskast.