Fundargerð 133. þingi, 0. fundi, boðaður 2006-10-02 14:00, stóð 14:01:40 til gert 2 16:1
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

mánudaginn 2. okt.

Árið 2006, mánudaginn 2. október, var hundrað þrítugasta og þriðja löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það hundraðasta og níunda aðalþing í röðinni en hundrað fertugasta og áttunda samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu kl. 1.15 miðdegis og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 1.30. Séra Dalla Þórðardóttir predikaði og þjónaði fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Anna Kristín Gunnarsdóttir, 6. þm. Norðvest.
  2. Arnbjörg Sveinsdóttir, 6. þm. Norðaust.
  3. Ágúst Ólafur Ágústsson, 10. þm. Reykv. s.
  4. Árni M. Mathiesen, 1. þm. Suðvest.
  5. Ásta R. Jóhannesdóttir, 4. þm. Reykv. s.
  6. Ásta Möller, 10. þm. Reykv. n.
  7. Birgir Ármannsson, 11. þm. Reykv. s.
  8. Birkir J. Jónsson, 9. þm. Norðaust.
  9. Bjarni Benediktsson, 8. þm. Suðvest.
  10. Björgvin G. Sigurðsson, 7. þm. Suðurk.
  11. Björn Bjarnason, 2. þm. Reykv. n.
  12. Dagný Jónsdóttir, 8. þm. Norðaust.
  13. Drífa Hjartardóttir, 2. þm. Suðurk.
  14. Einar K. Guðfinnsson, 4. þm. Norðvest.
  15. Einar Oddur Kristjánsson, 9. þm. Norðvest.
  16. Einar Már Sigurðarson, 7. þm. Norðaust.
  17. Geir H. Haarde, 1. þm. Reykv. s.
  18. Guðjón Hjörleifsson, 5. þm. Suðurk.
  19. Guðjón Ólafur Jónsson, 7. þm. Reykv. n.
  20. Guðjón A. Kristjánsson, 5. þm. Norðvest.
  21. Guðlaugur Þór Þórðarson, 4. þm. Reykv. n.
  22. Guðmundur Hallvarðsson, 8. þm. Reykv. s.
  23. Guðni Ágústsson, 3. þm. Suðurk.
  24. Guðrún Ögmundsdóttir, 3. þm. Reykv. n.
  25. Gunnar Örlygsson, 10. þm. Suðvest.
  26. Halldór Blöndal, 2. þm. Norðaust.
  27. Helgi Hjörvar, 5. þm. Reykv. n.
  28. Hjálmar Árnason, 6. þm. Suðurk.
  29. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, 9. þm. Reykv. n.
  30. Jóhann Ársælsson, 2. þm. Norðvest.
  31. Jóhanna Sigurðardóttir, 2. þm. Reykv. s.
  32. Jón Bjarnason, 8. þm. Norðvest.
  33. Jón Gunnarsson, 10. þm. Suðurk.
  34. Jón Kristjánsson, 4. þm. Norðaust.
  35. Jónína Bjartmarz, 6. þm. Reykv. s.
  36. Katrín Júlíusdóttir, 7. þm. Suðvest.
  37. Kjartan Ólafsson, 8. þm. Suðurk.
  38. Kolbrún Halldórsdóttir, 8. þm. Reykv. n.
  39. Kristinn H. Gunnarsson, 7. þm. Norðvest.
  40. Kristján L. Möller, 3. þm. Norðaust.
  41. Lúðvík Bergvinsson, 4. þm. Suðurk.
  42. Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurk.
  43. Magnús Stefánsson, 3. þm. Norðvest.
  44. Margrét Frímannsdóttir, 1. þm. Suðurk.
  45. Mörður Árnason, 7. þm. Reykv. s.
  46. Pétur H. Blöndal, 3. þm. Reykv. s.
  47. Rannveig Guðmundsdóttir, 2. þm. Suðvest.
  48. Sigríður A. Þórðardóttir, 3. þm. Suðvest.
  49. Sigurður Kári Kristjánsson, 6. þm. Reykv. n.
  50. Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðvest.
  51. Sigurrós Þorgrímsdóttir, 11. þm. Suðvest.
  52. Siv Friðleifsdóttir, 5. þm. Suðvest.
  53. Sólveig Pétursdóttir, 5. þm. Reykv. s.
  54. Steingrímur J. Sigfússon, 5. þm. Norðaust.
  55. Sturla Böðvarsson, 1. þm. Norðvest.
  56. Sæunn Stefánsdóttir, 11. þm. Reykv. n.
  57. Valdimar L. Friðriksson, 9. þm. Suðvest.
  58. Valgerður Sverrisdóttir, 1. þm. Norðaust.
  59. Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 6. þm. Suðvest.
  60. Þórunn Sveinbjarnardóttir, 4. þm. Suðvest.
  61. Þuríður Backman, 10. þm. Norðaust.
  62. Ögmundur Jónasson, 9. þm. Reykv. s.
  63. Össur Skarphéðinsson, 1. þm. Reykv. n.

Forseti Íslands setur þingið.

[14:01]

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, til ræðustóls og las forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman mánudaginn 2. október.

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Geir H. Haarde, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.


Ávarp aldursforseta.

[14:18]

Aldursforseti, Jóhanna Sigurðardóttir, 2. þm. Reykv. s., bauð alþingismenn velkomna til starfa og lét í ljós þá ósk að störf Alþingis mættu verða alþingismönnum til sóma og landi og þjóð til heilla.


Minning Magnúsar H. Magnússonar.

[14:19]

Aldursforseti minntist fyrrverandi þingmanns, Magnúsar H. Magnússonar, er lést 22. ágúst sl.


Afsal þingmennsku.

[14:23]

Aldursforseti tilkynnti að borist hefðu bréf frá Halldóri Ásgrímssyni um að hann afsalaði sér þingmennsku. Sæti hans tekur Sæunn Stefánsdóttir.

Aldursforseti bauð nýjan þingmann velkominn og þakkaði Halldóri Ásgrímssyni fyrir störf hans á Alþingi og óskaði honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.


Kosning forseta.

[14:24]

Gengið var til forsetakosningar. Atkvæði féllu þannig að Sólveig Pétursdóttir, 5. þm. Reykv. s., hlaut 55 atkvæði, 7 þingmenn greiddu ekki atkvæði.


Ávarp forseta.

[14:26]

Hinn nýkjörni forseti gekk til forsetastóls og ávarpaði þingheim.

Fundi frestað kl. 14.34.

---------------